07.11.2008 18:35
Víraslagur
Við fengum óvæntan "glaðning " í dag um hádegisbilið þegar við vorum að renna niður ljúffengum þorski að hætti Níels yfirbryta. Eftir harða og langa festu kom í ljós að togvíraranir lágu allir saman í einum graut, báðir hlerar og lóðið í einum hönk. Eftir snarpa viðureign og snör handtök dekkmanna jafnt sem brúarmanna leystist fljótt úr flækjunni og þurfti að splæsa einn togvírinn. Stuttu seinna, eða um 2 klst eftir festu rann trollið aftur í sjóinn, tilbúið að fiska að nýju.
Þannig að ekki varð mikill skaði eða frátafir frá veiðum af þessum óvænta glaðning okkar og héldum við glaðir í bragði niður í vinnslu að vinna afla. En annars er allt gott að frétta af okkur og eru menn mjög sáttir við nýju vinnslulínuna. Sendum við hér eina mynd af glaðning dagsins.
Kveðja,
Yfirbloggararnir.

Skrifað af GINarar
Flettingar í dag: 88
Gestir í dag: 41
Flettingar í gær: 178
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 613200
Samtals gestir: 158742
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 08:25:22