05.11.2008 16:35

Stund milli stríða

Jæja loksins kom smá tími til að blogga en það var bara út af brælu. Við þurftum að taka trollið innfyrir út af vonskuveðri. Við erum að komast upp á lag með nýju vinnsluna eftir margar smábreytingar og erum við sammála um að þegar hún verður endanlega eins og við viljum hafa hana þá verður þetta bara snilldemoticon .  Aflinn er farinn að renna nokkuð örugglega í gegn um vinnsluna og finnst okkur þó muna mest um að hafa mann í úrtínslu við blandaðan afla án þess að þurfa að taka viðkomandi úr pökkun.  Og ekki grátum við okkur í svefn yfir því að körfuburður er nánast úr sögunni, nema svona rétt til að gleðja hæstvirtan vinnslustjóraemoticon.  Annars er bara allt gott af okkur að frétta og Internetið er mjög gott á meðan það hangir inni en verið er að vinna í að það verði stabílara. Látum við nokkrar myndir fljóta með.


Hluti af bátsmannsvaktinni í áhöfn Jóels



Meðaflakör og færiband sem liggur að hausara




Horft fram með flokkaranum. Frystitækin fjærst á mynd.



Aðstaða til að hreinsa hausa og flokka.



Færibandið sem flytur afla að flokkar. Hér fer skolun og eribate úðun líka fram.
Flettingar í dag: 161
Gestir í dag: 54
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640868
Samtals gestir: 164311
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 16:48:07