05.11.2008 16:35
Stund milli stríða
Jæja loksins kom smá tími til að blogga en það var bara út af brælu. Við þurftum að taka trollið innfyrir út af vonskuveðri. Við erum að komast upp á lag með nýju vinnsluna eftir margar smábreytingar og erum við sammála um að þegar hún verður endanlega eins og við viljum hafa hana þá verður þetta bara snilld
. Aflinn er farinn að renna nokkuð örugglega í gegn um vinnsluna og finnst okkur þó muna mest um að hafa mann í úrtínslu við blandaðan afla án þess að þurfa að taka viðkomandi úr pökkun. Og ekki grátum við okkur í svefn yfir því að körfuburður er nánast úr sögunni, nema svona rétt til að gleðja hæstvirtan vinnslustjóra
. Annars er bara allt gott af okkur að frétta og Internetið er mjög gott á meðan það hangir inni en verið er að vinna í að það verði stabílara. Látum við nokkrar myndir fljóta með.

Hluti af bátsmannsvaktinni í áhöfn Jóels

Meðaflakör og færiband sem liggur að hausara

Horft fram með flokkaranum. Frystitækin fjærst á mynd.

Aðstaða til að hreinsa hausa og flokka.

Færibandið sem flytur afla að flokkar. Hér fer skolun og eribate úðun líka fram.
Hluti af bátsmannsvaktinni í áhöfn Jóels
Meðaflakör og færiband sem liggur að hausara
Horft fram með flokkaranum. Frystitækin fjærst á mynd.
Aðstaða til að hreinsa hausa og flokka.
Færibandið sem flytur afla að flokkar. Hér fer skolun og eribate úðun líka fram.
Skrifað af GINarar
Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 310
Gestir í gær: 96
Samtals flettingar: 612939
Samtals gestir: 158637
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 00:55:34