01.11.2008 19:25

Siglt á miðin

Jæja eftir annasama nótt hjá bæði vélstjórum og hásetum var loksins lagt af stað í dag um hádegið.  Það var nóg að gera hjá öllum við að prufukeyra vinnsluna því það var mikið um glussaleka og eins þurfti að strekkja flest færibönd og þessháttar eins og gengur og gerist með nýja vinnslulínu.

Slippkarlarnir komu svo í morgun og kláruðu það sem við gátum ekki lagað og voru þeir búnir á hádegi sem sagt allt klárt og bara að fara fiska.

Flettingar í dag: 92
Gestir í dag: 43
Flettingar í gær: 178
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 613204
Samtals gestir: 158744
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 09:08:57