Blogg
1.11.2008
Siglt á miðin
Jæja eftir annasama nótt hjá bæði vélstjórum og hásetum var loksins lagt af stað í dag um hádegið. Það var nóg að gera hjá öllum við að prufukeyra vinnsluna því það var mikið um glussaleka og eins þurfti að strekkja flest færibönd og þessháttar eins og gengur og gerist með nýja vinnslulínu.
Slippkarlarnir komu svo í morgun og kláruðu það sem við gátum ekki lagað og voru þeir búnir á hádegi sem sagt allt klárt og bara að fara fiska.
Slippkarlarnir komu svo í morgun og kláruðu það sem við gátum ekki lagað og voru þeir búnir á hádegi sem sagt allt klárt og bara að fara fiska.
Flettingar í dag: 373
Gestir í dag: 67
Flettingar í gær: 254
Gestir í gær: 70
Samtals flettingar: 418791
Samtals gestir: 108921
Tölur uppfærðar: 7.9.2010 21:04:35
