30.10.2008 18:54

Prufusigling

Jæja það var farið í prufusiglingu út Eyjafjörðinn í gærkvöldi til að prufa svartolíubúnaðinn og reyndist hann í alla staði mjög vel. Lagt var af stað um 19:00 og komið aftur að bryggju um 21:00.

Karlarnir í slippnum hafa hluta af morgundeginum til þess að klára millidekkið og það lítur út fyrir að það takist.

Eftir það verður stefnan sett heim (þ.e. Torgið) og nýju græjurnar prufaðar.


Úrsláttaraðstaðan nýskveruð og flott.



Séð aftur að færiböndunum sem bera fisk og hausa að lóðréttum tækjum



Fiskidælan/þvottavél fyrir bolfisk

Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 310
Gestir í gær: 96
Samtals flettingar: 612940
Samtals gestir: 158638
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 01:20:42