Blogg

28.10.2008

Hvilvtenni

Ég fór smá rúnt í Reykjavík í dag og tók þá eftir að togarinn Taurus lá við Grandabryggjuna. Togarinn er í eigu Reyktal og er skipið gert út frá Eistlandi. Taurus hét áður Hvilvtenni FD 60 og var gerður út af Kjartani Jacobsen útgerðarmanni í Leirvík, Færeyjum.

Árið 2000 fékk Kjartan afhent nýtt og glæsilegt skip sem smíðað var í Tomrefjord í Noregi. Skipið var gert út á rækju en rekstur þess gekk illa og árið 2003 seldi hann það til Útgerðarfélagsins Tjaldur hf (sem síðar varð að Brim hf). Skipið var afhent í ársbyrjun 2004 og var gefið nafnið Guðmundur í Nesi, eftir afa Guðmundar Kristjánssonar útgerðarmanns.

Ég læt hér fylgja með nokkrar myndir.


Taurus (Ex. Hvilvtenni FD60)


Svona leit skútan út í færeyjum


Guðmundur í Nesi RE13 í dag (Mynd Þorgeir Baldursson)


Skrifað 28.10.2008 kl. 19:12 af Gunni

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 117
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 560
Gestir í gær: 92
Samtals flettingar: 419574
Samtals gestir: 109061
Tölur uppfærðar: 9.9.2010 09:48:06