13.09.2008 14:55

Komnir í land - farnir í slipp

Jæja, þá er áttundu veiðiferð ársins lokið. Við komum í land á Akureyri í gær og nú fer skipið í slipp þar sem það á að gera vélar þess klárar til að brenna svartolíu.

Túrinn var annars fínn þó svo að það hefði farið lítið fyrir lúðunni. Vorum með mjög blandaðan afla, alls um 440 tonn. Aflaverðmæti var um 112 milljónir.

Fengum fyrstu haustlægðina yfir okkur í túrnum og fannst okkur það nú full snemmt.

Aríel "F.Ó" Pétursson var í sínum síðasta túr með okkur en hann hefur heiðrað okkur með nærveru sinni síðustu túra. Núna ætlar hann að halda áfram með námið í Stýrimannaskólanum (eða hvað sem sá skóli heitir þetta árið). Þökkum við honum fyrir samstarfið.

Bjóðum Ingva "Lilla" Ingvason velkominn til starfa en hann hefur síðustu 19 ár verið á Hrafni Sveinbjarnar.

Munum setja inn myndir úr túrnum mjög fljótlega, en látum eina flakka hér með. Jóhannes þurfti aðeins að taka í Aríel og náðist það á mynd.

 

Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 310
Gestir í gær: 96
Samtals flettingar: 612939
Samtals gestir: 158637
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 00:55:34