Blogg
11.8.2008
Sjórinn nálgast
Jæja þá er búið að boða brottför annað kvöld kl 22:00 frá vogabakka í reykjavík. Jolla gengi er að koma úr hörku túr 115-120 millur, ekki alveg komið á hreint þegar pistla höfundur gerir þessa færslu. Við erum að fara í 30 daga túr, áttum upphaflega að vera inni á akureyri 15 september en því var breytt og verður landað föstudaginn 12 september, skipið fer svo í slipp 15 sept. Eftir þennan túr tekur við sirka 9-10 vikna frí hjá áhöfninni það á að setja búnað um borð í skipið svo hægt verði að brenna svartolíu og segja helstu fræðimenn að það muni taka um 5-6 vikur, jolla gengi tekur svo túrinn eftir það svo það er langt frí hjá okkur eftir þennan túr. Netið verður sett um borð hjá okkur í slippnum svo það verður ekkert um færslur hjá okkur þennan túrinn.
Flettingar í dag: 136
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 560
Gestir í gær: 92
Samtals flettingar: 419593
Samtals gestir: 109061
Tölur uppfærðar: 9.9.2010 10:09:12
