07.05.2008 09:15

Platan kemur út á morgun !

Já góðir hálsar þið þurfið ekki að bíða mikið lengur því platan kemur út á morgun klukkan 14:00! Hún verður seld í betri tónlistarverslunum landsins og þess má geta að um 5000 eintök voru send norður á Húsavík og mun vera sérstök miðnæturopnun í bókabúðinni annað kvöld. Söngvari sveitarinnar, sjálfur Jón Ólafur mun, mæta á staðinn og taka nokkur lög fyrir trylltan lýðinn.


Svona lítur gripurinn út .... en meðal laga á plötunni eru slagarar eins og " Hlauptu drengur hlauptu", "Lásaðu úr helvítið þitt" og "Fletcher my man" .
Flettingar í dag: 308
Gestir í dag: 95
Flettingar í gær: 203
Gestir í gær: 67
Samtals flettingar: 612932
Samtals gestir: 158631
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 23:59:21