06.05.2008 11:08

Rakarastofa Kela!!

Bátsmaðurinn tók sig til á útstíminu í síðasta túr og ætlaði sér að gera áhöfnina líkari sjálfum sér og bauð upp á ókeypis rakstur upp í brú milli 2 og 4 þennan ágætis fimmtudag 4 apríl síðastliðinn. Sumir gengu svo langt að segja að raksturinn hafi átt sinn þátt í mettúr og verður fróðlegt að sjá hvað verður gert á næsta útstími....



Stjáni var fyrstur í stólinn og er ekki annað að sjá á karlinum en að hann sé sáttur með þetta



Aríel var næstur...



Ómar var síðastur í stólinn


Það eru komnar nokkrar myndir úr síðasta túr í albúmin hjá okkur, ég á eftir að setja inn fleiri myndir af rakstrinum og einnig þegar við skruppum yfir í Þór HF og náðum í nema.

p.s ég tók Athugasemda kerfið i burtu í smá tíma það voru einhverjir óprúttnir aðilar að notfæra sér það til auglýsa lélegar porno síður

Flettingar í dag: 5
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 310
Gestir í gær: 96
Samtals flettingar: 612939
Samtals gestir: 158637
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 00:55:34