02.05.2008 15:00
Mettúr
Jæja þá erum við komnir í land eftir 30 daga veiðiferð, við gerðum okkur lítið fyrir og slógum öll met á skipinu og komum heim með 141 milljón. Ég er að vinna í því að setja inn myndir úr túrnum á síðuna.
Guðmundur
í Nesi kom inn til löndunar árla í morgun með met aflaverðmæti sem nema
liðlega 141 milljón. Túrinn var 30 daga túr, höfn í höfn og hefur
skipið aldrei áður komið með slík verðmæti heim allt frá því það kom
til landsins árið 2004. Tilefni er til að óska áhöfn Kristjáns
Guðmundssonar til hamingju en heyrst hefur á gárungum að hér sé rómað
heilsuátak skipverja þegar byrjað að skila sér.
brimhf.is
Skrifað af Gunni
Flettingar í dag: 97
Gestir í dag: 44
Flettingar í gær: 178
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 613209
Samtals gestir: 158745
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 09:30:02