Færslur: 2010 Júlí
29.07.2010 21:59
Íslandsmeistarinn
Íslandsmeistarakeppnin í netabætningum fór fram í Grindavík um sjómannadagshelgina. Tveir áhafnarmeðlimir hjá okkur, Valdi bátsmaður í Jóelsgengi og Ingvi (Lilli) háseti hjá Stjána, kepptu fyrir hönd Guðmundar í Nesi. Skemmst er frá því að segja að þeir lentu í tveimur efstu sætunum, Lilli varð Íslandsmeistari og Valdi í öðru sæti. Glæsilegur árangur hjá strákunum.
Íslandsmeistarinn með bikarinn á lofti
Strákarnir að bæta. Valdi nær, Lilli fjær. Myndin ef fengin af heimasíðu Veiðarfæraþjónustunnar, sem stóð fyrir keppninni - www.veidarfaeri.is
Skrifað af GINarar
21.07.2010 20:21
Vaknað af löngum dvala
Þá er best að fara að girða sig í brók og byrja aftur að blogga á þessari síðu. Það eru nokkrar ástæður fyrir því að hér hefur ekkert gerst síðustu vikur. Í fyrsta lagi þá hefur Jolla gengi hætt að nota síðuna og mun ekki blogga hér lengur þegar þeir eru á sjó. Þeir hafa færst sig yfir á Andlistsskrudduna.
Við í höfum aftur á móti bara verið í sumarfríi :)
Það hefur verið lítið að frétta af okkur þá daga sem liðnir eru af þessum túr. Það er að segja þar til í hádeginu í dag. Þá fengum við eitt stykki beinhákarl í trollið, og með honum fylgdu öll þau skemmtilegheit sem þeim ódrætti fylgir. Sem betur fer var hann af smærri gerðinni (ekki að grínast) og því gekk frekar vel að ná honum úr pokanum.
Lofum að standa okkur betur það sem eftir lifir túrs.

Kominn út úr pokanum

Bjarni er frekar lítill í samanburði við hákarlinn

Ekkert hægt að nýta þetta kvikindi

Strákarnir að setja stroffu á hann þannig að hægt væri að hífa hann út

- 1
Flettingar í dag: 161
Gestir í dag: 54
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640868
Samtals gestir: 164311
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 16:25:40