Færslur: 2010 Apríl
28.04.2010 06:01
Skúffukökukúturinn.
Sælt verið fólkið.Af okkur Guðmundar mönnum er allt gott að frétta,eru menn jákvæðir og hressir þessa dagana.Er það mál manna að þessi túr sé búinn að vera einstaklega góður veðurlega séð,sem er bara snilld á þessum árstíma.Það þykir líka merkilegt að ekkert hefur hvissast á milli þeirra nafna,sultartröllins og skagarfjarðartröllins.Hafa þeir félagarnir myndað einstakt samband sín á milli,sést jafnvel leiðast á dekkinu.En að máli málana núna er að hann litli skúffukúturinn okkar hann Guðmundur Haukur er loksins búinn að slíta af sér barnsskónum og er kappinn þrítugur í dag.Eru menn hér um borð ekki allveg að kaupa það að kappin sé kominn á fertugsaldurinn vegna þess hve hann ber þennan aldur vel.Verður mikil pizzu veisla fyrir kappan í hádeginu og efa það ekki að menn taki hressilega á því.Hann Níels er algjör atlantshafsmeistari í pizzugerð og er síðuritara farið að hlakka skuggalega til.Til hamingju með daginn Gummi litli.Læt fylgja með mynd af kvikindinu,fallegur er hann. .
Skrifað af GINarar
20.04.2010 15:57
Afmæliskútar af stærri gerðinni.
Sæl og blessuð öll sömul.Af okkur er svo sem ekkert mikið marktækt að frétta héðan af hafinu bláa.Allir eru bara hressir og kátir um borð,þó séstaklega vaktformennir tveir.Þeir eru neflilega afmæliskútar að þessu sinni.Úddi annar stýripinni á afmæli í dag og er hann orðinn 36 ára og ber aldurinn bara nokkuð vel,sýnist síðurritara að hann sé með útlit uppá tuttugu og eitthvað.Síðan er það hinn formaðurinn það er ekkert slor afmæli,því sá mæti maður hann Valdi verður fertugur á morgun.Það finnst síðurritara líka með eindæmum því kappinn lítur út eins og unglingur.Heyrst hefur að Gunnþór Bjarnfreðarson ætli að taka stiklur úr fangavaktinni til heiðurs þessara mikilmanna,held líka að kokkurinn lumi nú á einhverju góðgæti fyrir hópinn í tilefni þessa tímamóta.
VALDI
ÚDDI
Skrifað af GINarar
15.04.2010 22:50
Öskuhaugar.
Héðan af okkur á Guðmundi 'I Nesi er nú ekki mikið að frétta að þessu sinni.Er allt hér við sinn vanagang.Eru menn búnir að vera að fylgjast með fréttum að heiman,mikið um að vera á litla íslandinu.fyrst kom margrædda skírslan svo eldgos beint í framhaldinu,frábært fyrir fréttamenn landsins bara allveg vertíð hjá þeim.Förum vonandi að setja myndir inná síðuna bráðlega en síðuritari veit um eina myndavél,sem að hefur verið safnað einhverjum myndum inná þennan túrinn.Sagan segir að bretar standi núna flestir uppá þaki hjá sér og gargi uppí ösku hauginn sem að rignir yfir þá frá okkur þessa stundina........We said cash not ash!!!!!!!
Skrifað af GINarar
08.04.2010 17:00
Menn Jóels mættir.
Góðan og blessaðan daginn allir saman.Sjálfar hetjurnar eru mættar til starfa eftir flott frí og eru allir bara nokkuð hressir hefur mér sýnst.Enn og aftur ætlum við að reyna að vera ekki latir í blogginu hóst hóst einhver kannski heyrt þetta áður.Erum við með nýliðann okkar um borð þennan túrinn,sjálfan konung grásleppurnar sjálfan í eigin nafni hann Guðmund Hauk.Bjóðum við hann bara velkominn til starfa.
Skrifað af GINarar
04.04.2010 12:45
Gleðilega páska og afmæliskarl
Allt gott af okkur á þessum síðustu dögum túrsins. Blíða eins og er og veisla hjá Bjössa eins og honum er einum lagið.
Síðan á hann Denni afmæli í dag. Karlinn er ekki degi eldri en hann lítur út fyrir að vera. Við óskum honum til hamingju með daginn.

Afmæliskarlinn
Síðan á hann Denni afmæli í dag. Karlinn er ekki degi eldri en hann lítur út fyrir að vera. Við óskum honum til hamingju með daginn.
Afmæliskarlinn
Skrifað af GINarar
- 1
Flettingar í dag: 161
Gestir í dag: 54
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640868
Samtals gestir: 164311
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 16:25:40