Færslur: 2010 Mars

31.03.2010 23:41

Þögnin rofin

Það verður að viðurkennast að við höfum verið latir að blogga undanfarið. En í raun hefur ekki verið frá miklu að segja.

Skipum hefur verið að fjölda hér á Torginu eins og vanalegt er á þessum árstíma.

Motturnar eru ennþá á sínum stað en menn ætla almennt að mæta með þær í land. Reyndar eru einn og einn sem eru "vel upp aldir" af konunum sem ætla að gugna á því. Við munum fela rakvélarnar fyrir þeim.

Nóg af þessu bulli - smellum frekar inn myndum.


Karlinn mættur í bætninguna



Og bátsmaðurinn



Og 2. stýrimaðurinn. Þetta er orðið ansi dýrt bætningarlið


Sýtirmannsvaktinn með motturnar (misjafnlega vel sýnilegar á svona lítilli mynd)

23.03.2010 23:02

Brælufréttir

Héðan er ekkert að frétta nema þessi endalausa bræla sem hefur valdið því að lítið hefur verið hægt að vera að veiðum þennan sólarhringinn.

En þá bætir maður skortinn á féttum upp með mottumyndun (þó að hjá sumum sé þetta bara skegghýjungur - þeir taka þetta til sín sem eiga það).


Kokkurinn kominn með fína mottu. Núna er bara málið að skella smá sósulit í hana



Ómar með fína mottu - Gunni með "eitthvað"



Allt í órækt hjá Heidda

22.03.2010 11:45

Bölvuð ótíð

Það eins sem við getum sagt þessa dagana um borð í Guðmundi í Nesi, er bræla, bræla, bræla. Og ekki er spáin fyrir þessa viku spennandi. En það verður að taka því eins og hverju öðru hundsbiti.

Menn halda áfram að safna mottum, þó svo að okkur finnist nú að heimtur í söfnuninni mætti vera betri (koma svo áhöfn í fríi og aðrir Brimarar).

Smelli inn tveimur mottu myndum, en síðan fer nú að styttast í mynd af kokkinum, Hrönn þú átt hana inni hjá okkur.


Drífa verður ánægð með þetta


Lilli hafði rakað í kringum mottuna 10 mínútum fyrr. Brjálaður skeggvöxtur í gangi

19.03.2010 15:43

Trollið tekið

Strákarnir að taka trollið í brælu.

18.03.2010 22:30

Nokkrar mottur

Það gengur hægt, en örugglega, hjá áhöfninni að safna hárum á efrivör. Menn eru mjög sáttir við þetta og tala sumir um að þetta sé framtíðin, ætla ekki að hlusta á neitt væl í konunum!

Annars er bara skítabræla hjá okkur með öllum þeim skemmtileg heitum sem því fylgja. Og veðurguðirnir ætla að hrella okkur eitthvað áfram samkvæmt veðurspám.

Annars minnum við bara á söfnunina okkar.

Hér eru nokkur sýnishorn af mottun, þær munu síðan verða birtar smátt og smátt.


Jói hefur hugsað sér að halda þessari út árið


Þetta eru nú bara veiðihár - hann er svo flottur


Gísli við mottuna "You complete me"

13.03.2010 00:51

Fyrsta mottan

Þá er komið að fyrstu mottumyndinni. Þetta er Gummi vélstjóri, en hann er mjög oft með mottu. Gummi er reyndar í fríi þennan túr, þar sem hann er í Jóels gengi.

Það styttist í fyrstu mottumyndina af okkur, en eins og er þá eru þær misjafnlega gróskumiklar.

Við hvetjum alla til að fara og heita á okkur og styðja þannig gott málefni.


Flott motta hjá Gumma

11.03.2010 12:52

Mottumars

Við höfum ákveðið að taka þátt í Mottumarskeppninni hjá Krabbameinsfélaginu. Menn eru byrjaðir að safna mottum eins og þeir eigi lífið að leysa og munum við smátt og smátt birta myndir af uppskerunni. Við hvetjum gesti síðunnar til að heita á okkur á síðunni Karlmenn og krabbamein. Nafn okkar í liðakeppninni er GINarar. Eiginkonur VERÐA að heita á okkur :)

Við hvetjum strákana sem eru í landi til að senda okkur mottumyndir af sér og taka þannig þátt. Þær verða líka birtar.

Annars er það helst í fréttum að það eru engar sérstakar fréttir. Það gengur bara allt sinn vanagang. Fyrir utan bræluna á útsíminu þá hefur verið mjög fínt veður hjá okkur, og þá sérstaklega í dag. Annars er þetta bara hið hefðbundna togaralíf, vinna, borða og sofa (og Facebook hjá sumum).

Hjalli var að fá sér nýja myndavél og var svo góður að láta okkur fá myndir til birtingar á vefnum.


Kokkurinn að skera niður grænmeti



Stýrimannsvaktinn klár í hífoppið



Ætli Denni sé að hugsa heim í Mosfellsdalinn?

07.03.2010 22:01

Loksins komnir á Torgið

Þá erum við loksins komir á Torgið eftir frekar langt útstím. Það var nóg að gera á útstíminu, þrjú ný troll til að gera klár, nýir vírar og síðan var bara skítabræla þannig að þetta tók allt sinn tíma.

Erum á fyrsta hali og erum bara bjartsýnir á mánuðinn sem framundan er. Eins og alltaf lofum við öllu fögru hvað bloggið varðar og vonandi tekst okkur að standa við það loforð.

Biðjum annars bara að heilsa í land og verið nú dugleg að kvitta fyrir heimsóknum.

04.03.2010 21:07

Ótitlað

Eitthvað hefur bloggsíðan verið að stríða okkur og hafa færslur strokast út jafnharðan og við skráum þær, biðjumst við velvirðingar á því.Hér má sjá mýndir úr túrnum og fleira. Tekið af Guðmundi vélstjóra
http://www.flickr.com/photos/44575906@N02/

    Flettingar í dag: 3
    Gestir í dag: 3
    Flettingar í gær: 310
    Gestir í gær: 96
    Samtals flettingar: 612937
    Samtals gestir: 158635
    Tölur uppfærðar: 9.2.2012 00:24:30