Færslur: 2010 Janúar
31.01.2010 00:56
Menn bjarga sér á sjónum
Þegar að óhöpp verða á sjónum þá þurfa menn að bjarga sér. Hér fyrir neðan má sjá myndir af því þegar að Heiðar stýrimaður er að sauma Gunna í hendina eftir að sá síðar nefndi hafði skorði sig.
Það er verst að myndirnar koma því ekki nægilega vel til skila hversu fagmannlega var staðið að þessu.
Annars er allt gott að frétta af okkur. Túrinn er á síðustu metrunum en löndun á að hefjast á þriðjudagsmorguninn.

Heiðar að taka fyrsta sporið. Aríel fylgist spenntur með

Spor númer tvö af þremur á leiðinni í hendina

Gunni bara nokkuð sáttur við meðferðina

Ein á léttari nótunum. Aríel búinn að gera sig klárann í að ræsa bátsmanninn. Hann stökk svona klæddur upp í koju til hans við mikinn fögnuð Kela

Skrifað af GINarar
24.01.2010 14:44
Þorrinn genginn í garð
Þorrinn heilsaði okkur með brælu að þessu sinni en hún er sem betur fer gengin niður. En það er víst skammgóður vermir þar sem það er spáð brælu aftur á morgun.
Að sjálfsögðu var þorrahlaðborð hjá kokkinum núna í hádeginu og tóku menn hraustlega til matar síns.
Annars eru menn bara vel haldnir og tilbúnir í átökin í síðustu viku þessa túrs. Einnig fylgjast menn spenntir með handboltalandsliðinu og eftir frekar skrikkjótta byrjun lofar leikurinn við Dani góðu um framhaldið.

Jói, Heiðar, Lilli og Gunni horfa spenntir á leik

Stóra setustofann smekkflull. Frá vinstir til hægri. Bjössi kokkur, Ómar, Björgvin, Hjalli, Keli, Aríel, Bjarni, Ægir, Júlli og Alli

Kokkurinn við þorrahlaðborðið

Gunni og Denni fá sér af kræsingunum

19.01.2010 18:39
Margir á Torginu
Skipunum hér á Torginu hefur fjölgað verulega undanfarna daga. Við erum orðnir svo heimaríkir hérna þannig að sjálfsögðu finnst okkur þetta bara frekja :)
Annars gengur lífið bara sinn vanagang hjá okkur. Við erum með eftirlistmann frá Fiskistofu með okkur og höfum á gott samstarf við hann það sem liðið er af túrnum og vonum að honum líki vistin með okkur. Hann segir að við séum skemmtilegasta áhöfnin í flotanum, en er ekki tilbúinn að láta okkur fá það skriflega. Erum að útbúa skjal þar sem þetta kemur fram og munum reyna að fá hann til að kvitta á það áður en túrinn er búinn.
Annars bara ÁFRAM ÍSLAND í handboltanum.

Gunni brosandi eftir að bláaliðið frá London vann eitthvað utandeildarlið 6-1

Hluti United klúbbsins að horfa á Man Utd vinna Burnley örugglega

Afleysingarmaðurinn eitthvað þreyttur. Fáum hann reglulega um borð til okkar til að lækka meðalaldurinn

16.01.2010 06:45
Sekur um bloggleti
Maður verður ´víst að játa á sig bloggletina. En þá er ekkert annað hægt að gera en að lofa bótum.
Annars er það helst að frétta héðan af Torginu að hin árlega þorskganga er frekar snemma á ferðinni. Undanfarin ár höfum við verið að fá vænan þorsk hérna í febrúar, allt niður fyrir 500 faðma. Núna er hann mánuði fyrr á ferðinni, og er eiginlega að flækjast fyrir öllu hérna. Við höfum velt því mikið fyrir okkur hvaðan þessi fiskur er að koma og í gær fengum við einn sem hafði verið merktur og höfum við loforð starfsmanna Hafró fyrir því að fá að vita eftir helgi hvar sá þorskur var merktur.
Það verður að segjast eins og er að þegar að fínn þorskafli er á rúmlega 500 faðma dýpi hér á Torginu þá fer maður nú að klóra sér í hausnum yfir þorkskvótanum. En hvað vitum við sjómenn!!

10.01.2010 02:41
Hvað er málið með helvítis köttinn?
Eins og dyggir lesendur síðunnar hafa tekið eftir þá birtist mynd af ketti (og stundum af einhverri tjörn og öðrum listrænum myndum) í hausnum á síðunni. Þetta er ekki vegna þess að við höfum fengið einhver sérstakann áhuga á ljósmyndun og ákveðið að birta þær svona. Síðan krassaði hjá okkur fyrir áramót og þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir til stjórnenda 123.is hefur ekki tekist að setja gömlu myndina aftur á sinn stað. En það stendur vonandi til bóta.
Eins og fram hefur komið í netmiðlum og í Fiskifréttum þá var síðasta ár hér hjá okkur á Guðmundi í Nesi mjög gott. Við strákarnir í báðum gengjum ætlum að gera okkar besta til að þetta ár verði ekki síðra.
Annars allt við það sama hér, það var búið að spá brælu hjá okkur en það varð eitthvað minna úr henni en til stóð. Vonandi helst það bara.

06.01.2010 19:09
Nýtt veiðiár hafið
Þá erum við mættir á Torgið í upphafi sjötta ársins sem togarinn hefur verið gerður út. Við fórum aðeins seinna út en vanalega þar sem það var verið að taka upp vélina og togspilin.
Menn hér um borð er ánægðir með árangurinn á síðasta ári og við stefnum á að gera a.m.k. jafnvel á þessu ári.
Það er smá íshrangl hérna núna, en ekkert sem er að trufla okkur. Vonandi verður bara nóg að gera hjá okkur þannig að hátíðarspekkið renni fljótt af mannskapnum.
Sérstakar baráttukveðjur til Nonna frá okkur, og Hildur biður að heilsa :)

Flettingar í dag: 82
Gestir í dag: 39
Flettingar í gær: 178
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 613194
Samtals gestir: 158740
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 08:03:57