Blogg

26.11.2009

Sleðagaurinn

Halló allir sem einn.Það er loksins kominn tími á smá blogg frá okkur(við sem ætluðum að vera svo duglegir við það).Það er búin að vera bræla nánast síðan að við fórum á sjó,en er veður nú að verða skaplegt allavega í augnablikinu.Eitt sem síðuritari vill nefna er að maður sem er hér um borð er Stefán nokkur Hallgrímsson heitir er búinn að fjárfesta í vélsleða,ekkert athugavert við það.Hef ég verið með honum í sirka 2 ár um borð,á þeim tíma hefur þessi sami maður alltaf fussað og sveijað þegar að veðurfræðingurinn á rás 1 er að spá snjókomu.En viti menn fyrir þremur dögum var síðuritari vitni að því þegar að þessi sami maður tók veðrið,hann nánast umturnaðist á stundinni þegar að það kom snjókomu spá fyrir norð-austursvæði íslands.Hann var svo glaður og sæll að annað eins hefur ekki sést lengi,'Eg myndi kalla þetta við snúning íslandsögunar.Vil ég líka óska Einari Erni til hamingju með það að halda ennþá út með það að fá sér ekki ljósar strípur.En jólin eru á næsta leiti og verður erfitt fyrir hann að falla ekki í hendur rakarans.                                                                                                                                                                                                                                                                     

Skrifað 26.11.2009 kl. 15:52 af GINarar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

21.11.2009

Erum mættir.

Komiði nú marg blessuð og sæl.Núna er jóelsgengi mætt um borð í skútuna,og allir bara sælir með það.Þetta er síðasti túrinn á árinu svo þetta er sankallaður jólatúr.Ætlum við að reyna að vera myndalegir við að blogga fyrir ykkur þennan túrinn.

Skrifað 21.11.2009 kl. 7:22 af GINarar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.11.2009

Loksins loksins !!

Jæja gott fólk þá er loksins komið að bloggi...

ástæðan fyrir bloggleysi er ekki sú að Gísli skuli vera í landi að skipta um bleyjur hún er einfaldega sú að við höfum verið önnum kafnir í að kjósa um staði og dagsetningu á jólahlaðborði sem við ætlum að skella okkur á 12 desember.

En annars gengur allt sinn vanagang hér um borð þessa dagana og eru menn farnir að sjá fyrir endann á þessum túr sem er búinn að einkennast af leiðinda veðurtíð hér á torginu.

Ég læt fylgja nokkra myndir sem teknar voru síðustu daga.


Strákarnir á Brimnesinu að koma yfir og "sníkja"


Fengu hjá okkur límmiða 


Kokkurinn og lúðuhausinn sinn


Bjarni að leika við "strákana" í skotleik


Ómar að pirra sig á því að Bjarni ná alltaf að drepa hann 

Skrifað 12.11.2009 kl. 6:47 af GINarar

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

2.11.2009

Sunnudagsveislan!

Bjössi kokkur fór hamförum í dag eins og alla aðra daga en þar sem við þreytumst ekki á að sýna ykkur hversu yndislegur kokkur hann Björn er þá koma hér nokkrar myndir frá sunnudagskaffinu.

Kallinn toppaði þetta svo í hádeginu og var með Gæsaveislu með öllu tilheyrandi.


Kaldur brauðréttur, skúffukaka, vínarbrauð skolað niður með heitu kakói


Vöfflur, skonsur, ritz kex, túnfisksalta og rækjusalat !!! 


Bátsmaðurinn fékk sér eina feita með rjóma og súkkulaði eins og hann orðaði það

Skrifað 2.11.2009 kl. 2:19 af GINarar

Bein slóð á færslu

11 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 75
Gestir í dag: 21
Flettingar í gær: 251
Gestir í gær: 65
Samtals flettingar: 417669
Samtals gestir: 108675
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 06:40:46