Færslur: 2009 Október

31.10.2009 12:44

Gíslingurinn

Við fórum í fyrradag yfir í Brimnesið til að fresla mann sem var í gíslingu þar. Þegar við nálguðumst Brimnesið sáum við hvar síðuhurðin opnaðist og maður stóð þarna í gættinni, þegar við komum að síðunni stökk maðurinn um borð til okkar öskrandi og veinandi. Þegar við vorum að fara keyra í burtu sáum við tvo eða þrjá háseta ásamt einhverjum vélamanni vera veifandi hnefunnum og hrópandi illkvittins orðum að okkur þegar við vorum að bruna í burtu.  Hann var frekar þjakaður eftir þá meðferð sem hann hlaut þarna. Hann er búinn að vera hér í tvo daga og höfum við séð mikla bætingu á bæði andlegri og líkamlegri heilsu hans.
En annars burt frá öllu gríni þá hlaut að koma að því að veðrið lagaðist og nú er bara sjá hvort veiðin gerði það ekki líka. Það hefur verið bölvað bras á þessu hjá okkur til þessa.

25.10.2009 16:19

Túrinn loksins byrjaður

Komiði öll sæl og blessuð... Það er mikið búið að ganga á síðan við fórum á hafið síðasta miðvikudagskvöld. 

Það er ekki hægt að segja að veðrið hafi tekið vel á móti okkur hér á torginu er við komum á miðin en við náðum þó að kasta 2 vörpum í fyrsta kasti en drógum ekki lengi og stóð til að setja út eina vörpu er slys varð á dekkinu og kalla þurfti til þyrluna en allt fór betur en á horfðist og braggast sjúklingurinn okkar bara ágætlega í höfuðborginni en það má þó búast við því að sjúklingurinn sé í vondu skapi akkurat núna eftir leiki dagsins :). 

Það er ekki enn búið að taka myndavélina upp úr tösku en vonandi verður það gert fljótlega..



P.S Hrönn hverjir eru á toppnum ?

21.10.2009 03:10

Lokablogg hjá Jollagengi

já þá er þessari veiðiferð hjá Jolla gengi senn að ljúka en við erum á oliubryggjuni núna og færum okkur svo á löndunarbryggjuna á eftir og þar taka vaskir menn til hendinni og landa uppúr skipinu,en túrin hefur gengið vel og eru allir sáttir og bara spenntir fyrir fríinu sem er framundan og sérstaklega fyrir næstu helgi er við förum á Brodway eins og áður hefur komið fram,En núna sendum við boltan yfir á srákana i hinu genginu og óskum þeim góðrar ferðar,

kv Stefán "nafni" og Gunnþór "splæsningarköttur"

19.10.2009 09:52

Keilu og dekurdagur.

Komiði öll marg blessuð og sæl. Allt er gott af Guðmundar mönnum að frétta, allir á fulluð að þrífa skipið hátt og lágt. Verðum í landi á miðvikudaginn í borg óttans hressir og kátir. Svo er brodway ekki langt undan hjá áhöfninni,og hefur verið skipulögð keiluferð fyrir kallanna um borð og dekur í baðhúsið fyrir betri helmingana.Er það mál manna að keilu keppnin verði ekki sanngjörn vegna liðsuppstillingar,eitt liðið er mannað vönum spilurum og einum landsliðsmanni. Þetta lið skipar Hindin(margverðlaunaður leikmaður),Valur (margverðlaunaður áhugarmaður,Ragnar (margverðlaunaður áhorfandi,og síðastur en ekki allra sístur er Níels kokkur (sem ber titil með rentu landsliðsmaðurinn)og er Níels jafnframt fyriliði liðsins.Er það mál manna að önnur lið eigi ekki mikinn mögurleika gegn þessu ógnarsterku liði Nílesar.En þangað til næst eigiði góðar stundir og hafiði það gott.Set inn eina mynd af fyrirliðanum og landsliðsmanninum Níelsi kokk.

15.10.2009 12:27

Sykurpúðinn óviðjafnanlegi.

Halló halló allir saman.Héðan af Guðmundi í Nesi er allt gott að frétta,allir hressir og kátir hér um borð.Núna er farin af stað síðasta vikan af þessum túr,fara þá þrif að hefjast senn.Langar að koma með smá saklausa getraun svona í lok túrs.                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                     Hvað heldur fólk að þessi maður eyði miklum pening á ársgrundvelli í klippingu og strípur,hafa skal það á hreinu að þessi sykurpúði er ekki á lausu.

13.10.2009 02:31

Myndir

setjum inn nokkrar myndir síðan í GIN útileigunni sem var haldin i sumar,


                                     Sigurliðið i fótboltanum      


                            Ragnar tók lagið við mikinn fögnuð


            Ragnar að selja Gunnþóri bjór á uppsprengdu verði


                          Biggi Mikka að taka lagið eftir námskeið frá Ragga



                     orðaleikur sem Gunnþór sigraði örugglega

10.10.2009 14:33

Vagg og velta

Góðan daginn landsmenn nær og fjær og auðvita sjómenn líka.Af okkur Guðmundar í nesi mönnum er bara allt þokkalegt að frétta,allir nokkuð brattir bara.Núna er ný yfirstaðinn fyrsta alvörubræla haustsins og var henni bara tekið með jafnaðargeði hér um borð,nebbinn uppí og dólað.Hér um borð eru menn að verða nokkuð spenntir vegna brodway ferðar,sumir jafnvel nokkuð yfir spenntir.Það hvístlaði lítill fugl að síðuritara að sumir menn væru að reyna að verða sér út um hvít sokka pör og jafnvel grifflur líka,hef ég heyrt talað um ljósbrunar meikdollur séu í þessum pakka líka.

                                                                                                                                                                                                                                                                                                Það kæmi ekki á óvart að þessi fengi eftirnafnið Jackson miða við takta sem að hann hefur sýnt.                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                               



Hindin hin eina sanna Jackson the man.











02.10.2009 18:43

stór dagur

komið þið sæl og blessuð ágætu velunnarar síðunar og aðrir merkismenn,En núna er stór dagur um borð i Guðmundi Í Nesi því að skipstjórinn okkar hann Jóel á afmæli i dag og er hann 43 vetra og var að því tilefni blásið til veislu sem staðið hefur yfir i dag,En nóg um veisluhöld því Kári og Ægir hafa ekki verið hliðhollir kallinum af tilefni dagsins,En þeir bræður eru búnir að láta gamminn geysa i allann dag og í þessum töluðu ( skrifuðu) orðum eru vörpunar fyrir innan, En að lokum viljum við óska kaptein kút til hamingju með daginn fyrir hönd áhafnarinar,

                                                                   Afmælisbarnið með kórónu sem áhöfnin gaf honum
    Flettingar í dag: 82
    Gestir í dag: 39
    Flettingar í gær: 178
    Gestir í gær: 69
    Samtals flettingar: 613194
    Samtals gestir: 158740
    Tölur uppfærðar: 10.2.2012 08:03:57