Færslur: 2009 September

28.09.2009 15:20

Moonwalk

Góðan daginn góðir landsmenn nær og fjær af okkur LAXmönnum er allt gott að frétta og lífið gengur sinn vanagang hérna um borð,fengum smá brælu á okkur um helgina en núna er aftur komin sannkölluð bongóblíða,En að máli málanna starfsmannasjóðnum;)þá situr skemmtinefnd GIN sveitt þessa dagana að skipuleggja ferð til Lundar i svíðþjóð og er þetta eingöngu fjármagnað með dósasöfnun,,,,,,,,nei nei en fórum samt i Lund i Öxarfyrði i sumar og það var bara gaman,En nefndin er að skipuleggja ferð á Brodway i næsta fríi og ætlum við að heiðra minningu Michael Jackson og skemmta okkur og öðrum og hefur sést til óliklegustu manna taka "moonwalkið" á göngunum,En að lokum viljum við óska Gísla i "hinu genginu" til hamingju með drenginn sem þau hjónin eignuðust núna á dögunum,
kv Nafni og Hetjan

25.09.2009 16:19

mættir á torgið

já þá eru strákarnir i Jollagengi mættir á torgið og aldeilis tilbúnir að sigra heiminn enda eru menn endurnærðir eftir langt og gott frí,en það hefur svo sem lítið dregið til tíðinda hjá okkur þessa fyrstu dagana nema þá kanski veðrið sem er búið að vera en það er búin að vera algjör bongóblíða og vonandi verður það þannig áfram,En við höfum fengið okkar besta mann aftur en það er skagafjarðartröllið Stefán "Nafni" Jónsson sem er i rauninni nýliðinn um borð því hann fór í frí hérna uppúr áramótum eftir að hann fékk þessa heiftarlegu hálsbólgu en eftir að hann komst i hálsmolana sem fást i kaupfélaginu á króknum þá er hann allt annar maður og tilbúin i slaginn á ný,og nafni hans Hallgrímson er svo glaður og ánægður að fá Nafna aftur að annað eins hefur ekki sést alveg síðan hann kynntist Villu sinni,
en höfum þetta ekki lengra i bili

                                     Stefán "Nafni" Jónsson

kv stýrimannsvaktin

19.09.2009 06:40

Síðasta færsla þessa túrs

Þá fer að líða að lokum þessa túrs. Löndun á að fara fram á mánudagsmorguninn, en við verðum við olíubryggjuna í Örfirisey seint annað kvöld. Þar sem að það er alltaf nóg að gera síðustu vaktirnar þá látum við þetta verða síðustu bloggfærslu þessa túrs (nema að bloggandinn grípi Gunna og hann smelli inn einni færslu).

Ætli það sé bara ekki best að enda þetta á einni fiskagátu í lokin og senda boltann yfir á Jolla og Co, en gera má ráð fyrir því að þeir byrji að blogga strax á þriðjudagsmorguninn :)


Frystum þennan ef vera skyldi að einhver hefði áhuga á honum

17.09.2009 17:05

Loksins ný færsla

Ætli það sé ekki best að byrja á því að afsaka okkur. Það er ekki bloggleti að kenna að það er svona langt síðan að eitthvað fréttist af okkur. Netið hefur verið skelfilegt undanfarið og nánast ekkert verið inni þangað til í dag.

En nóg um það. Það er allt fínt að frétta af okkur á þessum síðustu dögum túrsins. Við verðum í landi á aðfaranótt mánudagsins og þá er bara einn túr eftir hjá okkur á þessu ári, þ.e. Stjánagengi.

Þrif fara að byrja hjá okkur á morgun, en við tókum okkur reyndar til og grynnkuðum aðeins á inniþrifunum í dag.

Í stað þess að birta nokkrar myndir hér þá bjuggum við til nýtt myndaalbúm sem nálgast má í valmyndinni hér til hægri á síðunni. Þar eru ýmsar myndir úr túrnum, m.a. af hákarli, hámeri og hrikalegum jöxlum.

10.09.2009 03:55

Afmæliskarl dagsins

Enn einu sinni er blásið til afmælisveislu hér um borð. Núna er það bátsmaðurinn sem hefur náð þeim merka áfanga að verða komast einu ári enn nær 40 (djö.... er orðið stutt í það).

Við óskum honum hjartanlega til hamingju með daginn.


08.09.2009 18:33

Enginn sjúkarbíll út fyrir póstnúmer 105

"Vegna niðurskurðar hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu hefur verið ákveðið að sjúkrabílar munu ekki ná í sjúklinga nema í póstnúmer 101 - 105. Íbúar höfuðborgarsvæðisins sem búa fyrir utan þessi póstnúmer þurfa að koma sér sjálfir á á sjúkrahús eða mæta sjúkrabílnum á mörkum áðurnefndara póstnúmera. Vonast er til að þetta valdi ekki of miklum óþægindum fyrir almenning".

Mikið er maður hræddur um að það yrði allt brjálað ef tilkynning í þessa veru væri send út til fjölmiðla!

Að það eigi að bjóða okkur sjómönnum þá þjónustu sem er m.a. boðuð í þessari frétt er hrein móðugun við okkur og lýsir forgangsröðun og hugarfari sem maður trúði ekki að væri til.

Það er eins gott að við sem stundum sjómennsku í kringum 100 sjómílur frá landi tökum ekki upp á einhverri vitleysu eins og að veikjast eða slasast.

06.09.2009 00:27

Tvöfalt afmæli

Það verða miklar kræsingar á borðum hjá okkur í dag því að tveir heiðursmenn eiga afmæli.

Það eru þeir Björgvin Jónasson yfirvélstjóri, sem verður 63 ára, og Heiðar Gunnarsson yfirstýrimaður, sem verður 46.

Bjössi kokkur stóð í ströngu í gær við að undirbúa veisluna og hugsa menn sér gott til glóðarinnar í dag.

Koma svo - senda þeim afmæliskveðjur!!


Bjöggi (myndin er ekki ný)



Heiddi (myndin er ekki ný)

05.09.2009 13:12

Margir á Torginu

Þó nokkur skip eru stödd hér á Torginu þessa daga og eru flestir að reyna við karfa og gulllax. Við strákarnir erum engin undantekning og höfum verið að taka þátt í þessum veiðum.

Annars er bara lítið að frétta af okkur. Það hafa ekki verið að koma neinir furðufiskar í trollin undanfarið og því er engin ný gáta að þessu sinni.

Ilmurinn úr eldhúsinu hjá Bjössa er svo lokkandi að ritan á myndinni hér að neðan stóð og góndi inn um gluggan hjá honum klukkustundum saman í gær.

03.09.2009 00:54

Rólegheit

Loksins hefur Gísli leyft okkur strákunum á bátsmannsvaktinni að blogga smá....

Það er búið að vera fínt veður hjá okkur síðustu 2 daga eða svo og liggur bara vel á mannskapnum, það er kominn smá spenna í liðið fyrir tenerife ferðinni sem partur af áhöfninni ætlar að skella sér í er við komum í land og hafa menn mikið verið að spá í þessari guð blessuðu evru og verðlag á tenerife (ef einhver getur sagt okkur hvað stór bjór kostar á bar þá væri það vel þegið)

Við erum svo heppnir að vera komnir með nýjan ljósmyndara um borð en þessar myndir tók hann síðustu daga....



Keli nýskriðinn uppúr lestinni


Denni að skafa


Nýji ljósmyndarinn 


Ómar og Keli að bæta


Gunni og Ægir að flippa
    Flettingar í dag: 3
    Gestir í dag: 3
    Flettingar í gær: 310
    Gestir í gær: 96
    Samtals flettingar: 612937
    Samtals gestir: 158635
    Tölur uppfærðar: 9.2.2012 00:24:30