Færslur: 2009 Ágúst

30.08.2009 17:25

Sunnudagsfréttir

Enn og aftur kominn kaldi hér á Torginu. En við erum samt kátir því að sunnudagssteikin hjá Bjössa klikkaði ekki og nánast allir um borð eru ánægðir með úrslit helgarinnar í enska boltanum (allir nema Arsenal gaurarnir).

Tókum okkur til að þrifum millidekkið eftir mat og myndin hér að neðan er tekin þegar að strákarnir voru að þrífa sig eftir það.


4/6 af stýrimannsvaktinni, Alli, Júlli, Lilli og Jói


Og svo enn einn fiskur í "Hver er fiskurinn". Svolítið franskur þessi.

29.08.2009 12:25

Lítið að frétta - bara gáta

Ekkert að frétta af okkur, nema kannski það að það er loksins komið mannsæmandi veður eftir viku kalda.

Smellum bara inn einni léttri fiskigátu í fréttahallærinu. Og getið þið nú.

27.08.2009 02:35

Ótíð

Það er búinn að vera leiðindarkaldi hjá okkur alla vikuna og virðist hann ekkert vera á undanhaldi. Greinilegt að haustið ætlar að koma snemma hér á Torginu.

Menn eru nú samt sæmilega kátir og menn farnir að plana utanlandsferðina sem hluti áhafnarinnar fer í þegar við komum í land.

En til að drepa tímann skulum við halda áfram með "Hver er fiskurinn?"


23.08.2009 17:16

Bræla að skella á

Þá er fyrsta haustbræla á leiðinn og menn ekki sáttir við það. Vorum að vonast eftir áframhaldandi blíðu a.m.k. út september.

Annars lítið að frétta, menn ennþá að liðka liðamótin eftir gott frí.

Og þá er komið að fiski númer 2. Það væri nú fallegt að af sjóhundunum að leyfa landkröbbunum aðeins að spreyta sig áður en þeir svara.


Þessi er duglegur að skemma fyrir okkur vetlingana

21.08.2009 19:32

Áttunda veiðiferð ársins hafin

Jæja þá erum við mættir á heimaslóðirnar, þ.e. Torgið. Jolli og Co lönduðu fínum túr á miðvikudaginn og við fórum á sjóinn seint þá um kvöldið.

Það er rólegt yfir öllu hér núna og aðeins við og Örvar HU að skarka hér.

Myndavélin er ennþá í hvíld en við látum fylgja mynd af einni fisktegund sem slæðist oft upp með trollinu og vörpum fram spurningunni, hvað heitir fiskurnn?


Hvað heitir fiskurinn

18.08.2009 13:43

Á heimleið

Sælt veri fólkið.
Af mörgu getum við verið stoltir af en alls ekki dugnaðnum við að blogga á þessari fínu síðu okkar.  Við vorum greinilega ennþá með hugann í sumarfríi....lofum að gera betur í næsta túr.
Af okkur er það helst að frétta að við erum á fullu stími í land og með það eru að ég held allir mjög glaðir.  Veðrið í túrnum er búið að vera mjög gott og ekki yfir nokkru að kvarta.  Menn eru margir hverjir búnir að skipuleggja eitt og annað í fríinu, meðal annars að taka þátt í menningarnótt í Borg Óttans.  Svo eru aðrir sem sjá heita potta og öllara í hillingum.  Látum þetta duga í bili ....sjáumst fersk í næsta túr.
SKÁL

Smurpungurinn

04.08.2009 14:06

Fertugur gæðingur frá Víkinni fögru

Sæl öll sömul.
Rétt að koma því að að hann Einar Örn Arnarson fallegi vinur okkar og félagi varð fertugur í gær og
óskum við honum innilega til hamingju með þennann mikla áfanga...eins og áður hefur komið fram lítur hann með eindæmum vel út....hvort sem hann er strípaður eða ekki..með með strípur eða hvað þetta var.  Myndavélin var að stríða okkur í dag en veislukakan hans Einars var á borðum í dag og munum við reyna að bæta úr þessu myndaleysi hið fyrsta.  Látum fylgja með eina gamla mynd af goðinu.






                                      Rogginn með sig sá "gamli "






Kveðja Smurpungurinn.

02.08.2009 13:07

Þögnin rofin

Sælir velunnarar okkar til sjávar og sveita...nú er komið að því að bloggið ryðjist á stað..yfirbloggari vill koma því á framfæri að það er búið að færa hann yfir á stýrimannsvaktina og þar tíðkast bara eitt blogg í túr...og þetta er semsagt fyrsta bloggið...Af okkur er það helst að frétta að eftir svokallaða Bjarmalandsför í leit að tröllum og öðrum forynjum og stórum ísmolum.erum við aftur komnir á heimaslóðir ,Torgið góða og þá er allt svo frábært og gott... Hér um borð hafa menn verið mikið að vafra á netinu með það eitt í huga að koma aurunum sínum í lóg...menn spá í bílum,,,húsum og sérstkalega risastórum Húsbílum....og er mikið rætt um þessháttar efni..Lítill og góður strákur sem er hér um borð verður fertugur á morgun og ætlum við að græja köku með minnst 40 kertum fyrir hann að blása á....taka skal það fram að hann lítur ekki degi eldri út en 21...við ætlum að færa honum prins pólo sem er ættað frá PÓLLANDI en þaðan kemur ýmislegt sætt og gottttt.  Annars eru allir kátir og hressir hérna og sendum við baráttukveðjur til okkar ástkæra Stebba NAFNA og líka þeirra sem þetta lesa.



                                            
                                             Pakkað sem aldrei fyrr..

                                            




                     Tröllið frá Sultum arrggggggggggg koma svo





                                Djöfull er ég flottur sinnum minnst tveir



Kveðja frá yfirbloggarnum og smurpungnum loðna

    Flettingar í dag: 7
    Gestir í dag: 7
    Flettingar í gær: 310
    Gestir í gær: 96
    Samtals flettingar: 612941
    Samtals gestir: 158639
    Tölur uppfærðar: 9.2.2012 01:42:00