Blogg
30.8.2009
Sunnudagsfréttir
Enn og aftur kominn kaldi hér á Torginu. En við erum samt kátir því að sunnudagssteikin hjá Bjössa klikkaði ekki og nánast allir um borð eru ánægðir með úrslit helgarinnar í enska boltanum (allir nema Arsenal gaurarnir).
Tókum okkur til að þrifum millidekkið eftir mat og myndin hér að neðan er tekin þegar að strákarnir voru að þrífa sig eftir það.

4/6 af stýrimannsvaktinni, Alli, Júlli, Lilli og Jói
Og svo enn einn fiskur í "Hver er fiskurinn". Svolítið franskur þessi.

29.8.2009
Lítið að frétta - bara gáta
Ekkert að frétta af okkur, nema kannski það að það er loksins komið mannsæmandi veður eftir viku kalda.
Smellum bara inn einni léttri fiskigátu í fréttahallærinu. Og getið þið nú.

27.8.2009
Ótíð
Það er búinn að vera leiðindarkaldi hjá okkur alla vikuna og virðist hann ekkert vera á undanhaldi. Greinilegt að haustið ætlar að koma snemma hér á Torginu.
Menn eru nú samt sæmilega kátir og menn farnir að plana utanlandsferðina sem hluti áhafnarinnar fer í þegar við komum í land.
En til að drepa tímann skulum við halda áfram með "Hver er fiskurinn?"

23.8.2009
Bræla að skella á
Þá er fyrsta haustbræla á leiðinn og menn ekki sáttir við það. Vorum að vonast eftir áframhaldandi blíðu a.m.k. út september.
Annars lítið að frétta, menn ennþá að liðka liðamótin eftir gott frí.
Og þá er komið að fiski númer 2. Það væri nú fallegt að af sjóhundunum að leyfa landkröbbunum aðeins að spreyta sig áður en þeir svara.

Þessi er duglegur að skemma fyrir okkur vetlingana

21.8.2009
Áttunda veiðiferð ársins hafin
Jæja þá erum við mættir á heimaslóðirnar, þ.e. Torgið. Jolli og Co lönduðu fínum túr á miðvikudaginn og við fórum á sjóinn seint þá um kvöldið.
Það er rólegt yfir öllu hér núna og aðeins við og Örvar HU að skarka hér.
Myndavélin er ennþá í hvíld en við látum fylgja mynd af einni fisktegund sem slæðist oft upp með trollinu og vörpum fram spurningunni, hvað heitir fiskurnn?

Hvað heitir fiskurinn

Flettingar í dag: 85
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 251
Gestir í gær: 65
Samtals flettingar: 417679
Samtals gestir: 108680
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 07:02:31