Blogg
21.7.2009
Rólegt í sumarblíðunni
Það er búið að vera rólegt hérna á torginu frá því við í jóels gengi komum á miðin og lítið að frétta.Eitthvað af skipum eru norðan við okkur út af vestfjörðum en fáir hérna á torginu.Vitum ekki hversu duglegir við verðum í blogginu næstu daga enda ekki mikið hægt að skrifa um
.
kv af Guðmundi í Nesi
.
kv af Guðmundi í Nesi
13.7.2009
Góðum túr að ljúka
Við lögðum af stað áleiðis heim klukkan 7:30 í morgun. Áætlað er að við komum í olíuhöfnina í Örfirisey um klukkan 23:00 í kvöld. Þar verður tekin olía og síðan landað inni í Sundahöfn við Skarfabakka.
Túrinn er búinn að vera fínn í alla staði og verður hans sérstaklega minnst fyrir frábært veður allan túrinn. Þetta er fyrsti túrinn frá því að við byrjuðum á tveggja trolla veiðum þar sem aldrei þurfti að kasta einu trolli vegna veðurs. Veiðin hefur líka verið fín á köflum og eru menn mjög sáttir við árangurinn.
Jóel og félagar fara síðan á sjóinn annað kvöld og óskum við þeim góðrar ferðar og hvetju þá til dáða í blogginu.
Stjánagengi þakkar fyrir sig í bili.

Gísli með eina af stærri gerðinni

8.7.2009
Flott mynd
Loka vikan í þessum 35 daga túr er hafinn og menn farnir að telja niður dagana. Það er allt fínt af okkur, menn standa ennþá á blístri eftir tvær afmælisveislur á síðustu dögum.

Þessi glæsilega mynd af Guðmundi í Nesi var tekin um daginn af Bergþóri Gunnlaugssyni, skipstjóra á Hrafni GK 111. Það má sjá fleiri myndir af Guðmundi, og fullt af skemmtilegum myndum af sjónum á heimasíðu Bergþórs sem nálgast mér hér.

7.7.2009
Bjössi 52 ára !
Hann Bjössi okkar á afmæli í dag, karlinn er orðinn 52 ára og óskum við honum innilega til hamingju með daginn.
Síðustu dagar hafa verið lukkulegir hjá kokknum hann varð tvöfaldur afi í fyrradag og sendum við okkar bestu kveðjur norður á húsavík til fjölskyldu Bjössa.
3.7.2009
Hver er fiskurinn?
Við fáum reglulega furðufiska upp með trollinu hér á Guðmundi í Nesi. Í morgun þegar að við byrjuðum að vinna halið eftir síðustu nótt var óvenju mikið um svokallaða furðufiska. Um tegundarheiti eins þeirra erum við ekki alveg vissir (okkur vantar sárlega fiskabók).
Nokkrar tillögur komu strax, Lúsifer, Sædjöfull og fleiri en aðrir telja að hér sé um svokallaðann Ými að ræða. Við myndum þiggja tillögur frá okkur reyndari mönnum.

Ekki er hann fallegur

Og skánar lítið frá hlið

Flettingar í dag: 85
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 251
Gestir í gær: 65
Samtals flettingar: 417679
Samtals gestir: 108680
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 07:02:31