Blogg

30.6.2009

Grillveisla

Bjössi kokkur og Björgvin yfirvélstjóri tóku sig til að buðu til grillveislu í hádeginu. Grilluð voru svínarif af stæðstu gerð, og hlutu grillararnir mikið lof fyrir.

Einnig smellum við inn nokkrum myndum af heimsókn Brimnesmanna frá því í fyrradag. Jón Haukur yfirvélstjóri á Brimnesinu kíkti í heimsókn ásamt tveimur fullhuga Brimnesmönnum og var þeim vel tekið.

Endilega skiljið eftir kveðjur í athugasemdunum.



Björgvin tekur sig vel út við grillið


Þetta lítur vel út hjá karlinum


Strákarnir að bíða eftir Jóni Hauki


Strákunum slakað niður

Skrifað 30.6.2009 kl. 13:00 af GINarar

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.6.2009

Fleiri myndir úr blíðunni

Trollið var tekið rétt fyrir hádegi í dag í alveg frábæru veðri. Oft segja myndir meira en þúsund orð og því smellum við bara inn myndum í dag en bullum ekkert meira.



Strákarnir á stýrimannsvaktinni nýbúnir að taka trollið



Byrjað að sturta aflanum niður í móttöku



Annað trollið var aðeins rifið þannig að Heiddi yfirstýrimaður og Keli bátsmaður smelltu sér í bætningu eftir hádegi. Það væsir ekki um þá í blíðunni



Bátsmaðurinn sposkur á svipinn



Og að lokum mynd af Jóa að tala við stelpurnar sínar

Skrifað 27.6.2009 kl. 13:04 af GINarar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

26.6.2009

Heitur pottur og næs!

Það er búið að vera frábært veður í dag þannig að menn þyrsti í að njóta sömu þæginda og landkabbarnir. Strákarnir, með Hjalla og Lilla í broddi fylkingar, tóku sig til og græjuðu eitt stykki heitann pott.

Um klukkan 10 í kvöld var allt klárt og var bátsmaðurinn fyrstur til að skella sér til sunds. Potturinn er það vel staðsettur að þar næst GSM samband eins og er. Alger snilld!


Báturinn í pottinum og Alli að tala við frúna í GSM síma



Það getur verið fallegt á sjónum

Skrifað 26.6.2009 kl. 23:18 af GINarar

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.6.2009

Björgunaræfing

Já gott fólk bátmannsvaktin er mætt með færslu.

Dagvaktin var frekar róleg hjá okkur í gær og var því haldin reykköfunaræfing. Ómar og Ægir voru fyrstir til að reykkafa svo fóru Keli og Gunni næstir inn, Bjarni og Denni fengu það hlutverk að leika meðvitundarlausa menn. Allt gekk vel en hápunkturinn var sennilega þegar Ægir var látinn bera og hélt hann að Gunni væri sá meðvitundarlausi, kvikyndisskapurinn kom fram í nokkrum á vaktinni og skiptum við um mann og endaði hann með að þurfa að bera Kela útúr klefanum sem er tölvuvert þyngri en Gunni, hann átti ekki til orð hversu þungur Gunni væri orðinn meðan á ferðinni stóð.



Ægir og Ómar klárir



Bjarni meðvitundarlaus



Gunni og Keli leita vel...



Ægir að bera kela



Denni dreginn eftir ganginum

Skrifað 26.6.2009 kl. 2:16 af GINarar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

24.6.2009

Blíða

Allt flott af okkur. Hér er magnað veður og það fer vel um alla. Það stendur ennþá eitthvað í bátsmannsvaktinn að setjast niður við tölvuna og blogga en það hlýtur að lagast. 

Túrinn fer að verða hálfnaður þannig að það fer að vera tímabært fyrir strákana í Jollagengi að smella sjógallanum í þvottavélina og gera sig tilbúna.


Kokkurinn og bátsmaðurinn ræða lífsins gagn og nauðsynjar og fá sér í nefið

Skrifað 24.6.2009 kl. 22:37 af GINarar

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.6.2009

Í ræktinni

Skoða nánar

17.6.2009

Heimsókn í vélina

Skoða nánar

15.6.2009

Úrsláttur

Skoða nánar

14.6.2009

Fréttir af Torginu

Skoða nánar

12.6.2009

Áfallahjálp og munkarnir

Skoða nánar

10.6.2009

Fanga útlitið

Skoða nánar

9.6.2009

Léttabáturinn prufaður

Skoða nánar

9.6.2009

Komnir á miðin

Skoða nánar

4.6.2009

Endasprettur

Skoða nánar

1.6.2009

Sumarið er tíminn.

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 75
Gestir í dag: 21
Flettingar í gær: 251
Gestir í gær: 65
Samtals flettingar: 417669
Samtals gestir: 108675
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 06:40:46