Færslur: 2009 Maí

29.05.2009 07:33

stutt eftir

Þá er orðið stutt eftir af þessari veiðiferð hjá okkur og eru menn farnir að gera sig klára fyrir lokaþrif og annað tilheyrandi,en annars hefur þetta allt gengið sinn vanagang hérna hjá okkur fengum að vísu 2 daga brælu sem var ekki sérpöntuð af okkur hálfu þvi menn voru flestir komnir i sumarskapið en nú  eru menn svona nánast sammála um að sumarið sé komið og flestir ef ekki allir orðnir spenntir fyrir sumarfríinu og mesta spennann er i kringum GIN útileiguna sem verður haldin i Lundi,og er stjórnin buin að leggja drög af mjög spennandi dagskrá og er það fótbolta mótið sem menn er hvað spenntastir fyrir enda mikið lagt undir og verður rimmuni milli liða þar sennilega likt við úrslitaleik meistaradeildarinar sem fór samt ekki nógu vel að mati bloggara;),En annars ætla ég ekki að hafa þetta lengra i bili og leyfa nokkrum myndum að fljóta með,kv Bátsmannsvaktin


                                 Jóel skipstjóri á vaktinni


                          Agnar,Stefán og Valur ræða heimsmálin

                                 Bátsmannsvaktinn i netavinnu

             Karate kid les Rambó pistilinn yfir umgengi i nálakörfunni

22.05.2009 04:41

Björgunaræfing.

Jæja góðir landsmenn. af torginu er það helst að frétta að veðrið er eins og best verður á kosið en rólegt yfir veiðunum. En e-hvað verðum við að dunda okkur við hér í nafla alheimsinns og var því ákveðið að blása til björgunaræfingar í nótt og setja þyngsta manninn á vaktinni (100+) í sjúkrabörurnar út á dekki og drösla honum upp í sjúkraklefa. Gekk það vonum framar og slapp sá slasaði að mestu óskaddaður úr þessum hildarleik. Látum fylgja með nokkrar myndir af atburðum næturinnar. kærar kveðjur. Ritstjórn Stýrimannsvaktarinnar.













21.05.2009 20:53

Myndasyrpa

Það er lítið að frétta héðan af torginu en sumarið er þó komið.við sendum nokkrar myndir með og verst þykir okkur hvernig komið er fyrir innihaldi pottsins góða.Og bíða sumir rauðliðar spenntir eftir úrslitum meistaradeildarinnar og er það eina von síðasta vinningshafa til að klóra í bakkann eftir ofátið.

                           Hér eru kallarnir að taka trollið

           Hér heiðrar vinnslustjórinn dekkkarlana með nærveru sinni

                                 Kallarnir slá á belgina

                                  Agnar að spá og spekúlera

                     Elli þungt hugsi og smá móral eftir átið

                         Hér er potturinn góði ekki svipur hjá sjón

17.05.2009 08:33

Grátandi karlmenn.

Sælir aftur landsmenn til sjávar og sveita, nýja ritstjórninn vill þakka frábærar móttökur við síðustu færslu og viljum benda fólki á að það er ókeypis að kommenta á færslur og einnig að skrifa í gestabókina.En að máli málanna þá var Euróvision keppninn haldin i gær eins og flestir vita og voru fulltrúar okkar alveg til fyrirmyndir og náðu frábærum árangri og ætluðu menn alveg að tapa sér i gleðinni og var þar Elli vélstjóri fremstur meðal jafningja en hann vann pottinn góða og hefur ekkert til hans sést siðan en við höldum að hann eigi eftir að sjást i ræktinni næstu daga.......en stórkostlegt var að fylgjast með mönnum i gær meðan á keppninni stóð og lá við að hörðustu hetjur hafsins grétu og féllust sumir i faðma þegar 2 sætið var komið i hús.En annars gengur allt svipað hérna og safnast vel i starfsmannasjóðinn þvi það slæðist alltaf einn og einn hákarl með aflanum og situr nefndin sveitt núna að skipuleggja næstu gigg áhafnarinnar.Kv ritstjórn



                                   Menn fylgjast spenntir með.



Elli orðin sigurviss en Ragnar ekki eins brattur.



Gunnþór afhendir Ella sigurlaunin



Hægt var að rekja slóðina eftir hann niður í vél.

15.05.2009 20:00

Menn að komast i stuð?

Jæja þá er komið að því að bátsmanns vaktin ætlar að girða sig i brók og koma með eina færslu(því ekki gerir stýrimannsvaktin það),en ein helsta ástæðan fyrir bloggleysinu er að tölvan hjá vaktformanninum hrundi þegar hann og litli netamaðurinn voru að hlusta "þungarokk" en ef þeir kalla rokk ömmuna Tinu Turner þungarokk þá leifum við þeim bara að hafa það þannig;)En annars er allt að verða vitlaust á göngunum útaf Evróvision keppninni sem verður haldin á heimaslóðum Alex á morgun og eru menn almennt sammála um gott gengi fulltrúa Íslands i keppninni og þeir bjartsýnusta ætla jafnvel að flagga á morgun,,,,,,,,,,,,,,veðbankinn er opin og allir búnir að spá og leggja kók og stykki undir,2 úr áhöfninni eru búnir að eiga afmæli i túrnum og eru það Stefán Hallgríms og Guðmundur Gylfason og fengu þeir að sjálfsögðu veislu frá kokknum af þvi tilefni og viljum við óska þeim til hamingju með það,Dagskrá GIN hátíðarinar er komin og líst mönnum mjög vel á þessa dagskrá og greinilegt að stjórnin er að vinna gott starf en mesta spennan er fyrir GIN cup fótbolta mótinu,
Annars gengur allt sinn vanagang og menn eru hressir og kátir að vanda en við leyfum nokkrum myndum að fljóta með,,,,,



                                   Allt á fullu hjá "flokkaragenginu"



                            Ragnar og Gunnþór að hausa karfa



                                Norðfjarðar tröllið að taka á þvi

                             Ljósmyndir Gunnþór Sigurgeirsson

10.05.2009 00:17

Þreyttir bloggarar

Jæja Jolla gengi er komið á miðin reindar 4 dagar síðan en við ekkert nennt að blogga.Af okkur er bara allt rólegt að frétta frekar dræmt á miðunum og töluvert af skipum dreift um svæðið flest eru þau þó í startholunum yfir að úthafskarfinn fari að gefa sig.annars bara allt rólegt yfir öllu í augnablikinu en vonandi fer veiðin að glæðast.

07.05.2009 12:06

Komnir í land - Jolla gengi farið á sjóinn

Við komum í land á þriðjudagsmorguninn með fínann túr. Jolli og Co fóru síðan á sjóinn strax þá um kvöldið.

Túrinn var annars í alla staði fínn, þrátt fyrir að það megi alltaf vera meiri kraftur í fiskeríi, betra veður, minna rifið o.s.frv. Við erum aldrei alveg ánægðir :)

Núna er bloggboltinn kominn yfir á Valda, Údda og félaga. Við sendum sérstakar baráttukveðjur til hirðljósmyndara þeirra og vonum að hann smelli af eins og brjálaður maður og birti myndir a.m.k. einu sinni á dag!

Látum fylgja eina mynd sem tekin var í upphafi síðasta túrs þegar við vorum að hífa í kaldaskít. Þetta er reyndar mjög óvenjuleg sjón á Guðmundi í Nesi því að hann er örugglega með þurrustu skipum á Íslandsmiðum.

03.05.2009 04:01

Styttist í landstím

Það hefur aðeins dregist hjá okkur að blogga. Skýringin á því er sú að við höfum haft nóg að gera við að þrífa og gera klárt fyrir landstím.

Annars er allt við það sama hér á Torginu, mörg skip og frekar róleg veiði. Menn eru bara farnir að telja niður vaktirnar þangað til við komum í land.

Einnig er komin próftörn hjá tveimur áhafnarmeðlinum sem eru svo duglegir að vera í fjarnámi.


Lilli að þrífa bílskúrinn. Eins og 95% bílskúra á Íslandi þá hefur bíll aldrei komið í þennan


Það eru engin verðlaun fyrir að giska á á hvaða skipi þessi maður er
    Flettingar í dag: 88
    Gestir í dag: 41
    Flettingar í gær: 178
    Gestir í gær: 69
    Samtals flettingar: 613200
    Samtals gestir: 158742
    Tölur uppfærðar: 10.2.2012 08:25:22