Blogg
29.5.2009
stutt eftir
Þá er orðið stutt eftir af þessari veiðiferð hjá okkur og eru menn farnir að gera sig klára fyrir lokaþrif og annað tilheyrandi,en annars hefur þetta allt gengið sinn vanagang hérna hjá okkur fengum að vísu 2 daga brælu sem var ekki sérpöntuð af okkur hálfu þvi menn voru flestir komnir i sumarskapið en nú eru menn svona nánast sammála um að sumarið sé komið og flestir ef ekki allir orðnir spenntir fyrir sumarfríinu og mesta spennann er i kringum GIN útileiguna sem verður haldin i Lundi,og er stjórnin buin að leggja drög af mjög spennandi dagskrá og er það fótbolta mótið sem menn er hvað spenntastir fyrir enda mikið lagt undir og verður rimmuni milli liða þar sennilega likt við úrslitaleik meistaradeildarinar sem fór samt ekki nógu vel að mati bloggara;),En annars ætla ég ekki að hafa þetta lengra i bili og leyfa nokkrum myndum að fljóta með,kv Bátsmannsvaktin
Jóel skipstjóri á vaktinni
Agnar,Stefán og Valur ræða heimsmálin
Bátsmannsvaktinn i netavinnu
Karate kid les Rambó pistilinn yfir umgengi i nálakörfunni
22.5.2009
Og hér var bátsmannsvaktin við æfingar
22.5.2009
Björgunaræfing.
21.5.2009
Myndasyrpa
Það er lítið að frétta héðan af torginu en sumarið er þó komið.við sendum nokkrar myndir með og verst þykir okkur hvernig komið er fyrir innihaldi pottsins góða.Og bíða sumir rauðliðar spenntir eftir úrslitum meistaradeildarinnar og er það eina von síðasta vinningshafa til að klóra í bakkann eftir ofátið.
Hér eru kallarnir að taka trollið
Hér heiðrar vinnslustjórinn dekkkarlana með nærveru sinni
Kallarnir slá á belgina
Agnar að spá og spekúlera
Elli þungt hugsi og smá móral eftir átið
Hér er potturinn góði ekki svipur hjá sjón
17.5.2009
Grátandi karlmenn.
Sælir aftur landsmenn til sjávar og sveita, nýja ritstjórninn vill þakka frábærar móttökur við síðustu færslu og viljum benda fólki á að það er ókeypis að kommenta á færslur og einnig að skrifa í gestabókina.En að máli málanna þá var Euróvision keppninn haldin i gær eins og flestir vita og voru fulltrúar okkar alveg til fyrirmyndir og náðu frábærum árangri og ætluðu menn alveg að tapa sér i gleðinni og var þar Elli vélstjóri fremstur meðal jafningja en hann vann pottinn góða og hefur ekkert til hans sést siðan en við höldum að hann eigi eftir að sjást i ræktinni næstu daga.......en stórkostlegt var að fylgjast með mönnum i gær meðan á keppninni stóð og lá við að hörðustu hetjur hafsins grétu og féllust sumir i faðma þegar 2 sætið var komið i hús.En annars gengur allt svipað hérna og safnast vel i starfsmannasjóðinn þvi það slæðist alltaf einn og einn hákarl með aflanum og situr nefndin sveitt núna að skipuleggja næstu gigg áhafnarinnar.Kv ritstjórn
Menn fylgjast spenntir með.
Elli orðin sigurviss en Ragnar ekki eins brattur.
Gunnþór afhendir Ella sigurlaunin
Hægt var að rekja slóðina eftir hann niður í vél.
