Færslur: 2009 Apríl

28.04.2009 16:46

Farið yfir í Brimnesið

Tveir úr áhöfninni þurftu að fara í land í gær. Svo heppilega vildi til að Brimnesið var að leggja af stað og var gripið til þess ráðst að skutla þeim yfir í það.

Myndirnar hér að neðan eru frá þeirri ferð.


Keli bátur gerir allt klárt.


Allt klárt til að leggja af stað. Bara eftir að húkka úr línunni.


Lagt af stað yfir í Brimnesið


Smá sigling eftir. Veðrið var sæmilegt þannig að það fór vel á þessu


Strákarnir komnir um borð og verið að slaka okkur niður aftur


Gísli og Keli koma til baka

26.04.2009 01:32

Kosningavaka

Eins og lög gera ráð fyrir þá var haldin mini kosningavaka hér um borð hjá okkur. Það var ekki annað að heyra á mönnum að þeir séu nokkuð sáttir við úrslit kosninganna, sumir þó sáttari en aðrir.

Miðað við kosningavökur í landi þá var þessi á rólegu nótunum, ekkert vín og lítið sem ekkert sungið.


Eldri deildin áhugasöm að horfa á sjónvarpið. Það hefur gengið illa að lesa í það hvaða flokk Bjarni kaus - maðurinn er með pókerface.


Hjalli virtist bara vera sáttur við kosningarnar. Gaf ekki upp hvað hann kaus en sagði að það hefði ekki verið Ástþór.


Hvað skyldi vestfirðingunum finnast um það að Addi Kitta Gauj sé dottinn út af þingi?

24.04.2009 03:27

Sk***bræla á sumardaginn fyrsta

Það er búið að vera leiðindarveður hjá okkur undanfarna tvo sólarhringa og við höfum þurft að lóna í tvígang.

Höfum þó getað notað tímann til að þrífa skipið og fara yfir trollin. Einnig fengum við 6 hákarla í tveimur holum og það tók tíma að gera að þeim. Rúmlega 1 tonn af beitu!!

Við óskum gestum gin.is gleðilest sumars og vonum að veðrið hjá okkur í gær sé ekki fyrirboði um það sem koma skal í sumar.


Bjössi kokkur og Gunni ræða málin


Bolvíkingarnir þjálfa á sér þumlana

 

21.04.2009 01:55

Mótorhjólið

Hér er mynd af mótorhjólinu sem við fengum upp með trollinu eins og við lofuðum í síðustu bloggfærslu.

Annars er allt gott að frétta af okkur. Reyndar er skítabræla núna og spáin fyrir næstu daga ekkert sérstök. En það er ekkert sem við höfum ekki séð oft áður.


Flottur fákur. Heildarlengd er um 3 cm

20.04.2009 01:13

Ýmislegt kemur upp með trollinu

Það eru ekki bara hefðbundnar nytjategundir sem við fáum í trollið. Það er algengt að fá hákarl hér á Torginu og núna um helgina hefur margt óvenjulegt komið upp með því.

Til að byrja með fengum við einn lítinn sel í trollið. Hann fylgdist spenntur með okkur í vinnslunni áður en honum var sleppt. Það fór vel á með honum og Nonna þegar við vorum að smúla eftir að hafa klárað haldið.

Í halinu þar á eftir fengum við upp grænt mótorhjól. Það er nokkuð heillegt, en þó vantar á það vinstri hluta stýrisins. Þegar að þessi bloggfærsla er skrifuð er ekki búið að taka mynd af hjólinu en hún verður sett inn um leið og það er búið.

Síðan fáum við oft mikið af stórlúðu hér grynnst á Torginu - og eins og sjá má á meðfylgjandi mynd þá eru þær oft vel við vöxt.


Selurinn fylgist "spenntur" með


Nonni og selurinn að nýbúnir að smúla

Ekkert smá stykki, þ.e.a.s. lúðan

18.04.2009 16:07

Afmæliskarl dagsins

Hann Bjarni netamaður á afmæli í dag. Í tilefni dagsins var boðið upp á dýrindis grillað lambafile að hætti Bjössa og Bjögga.

Við óskum Bjarna hjartanlega til hamingju með daginn.

17.04.2009 17:54

Gæslan kíkti við

Það er allt ljómandi gott að frétta af okkur, veðrið er búið að leika við okkur síðustu daga hér á torginu og spá flestir því að sumrið sé á næsta leyti.

Landhelgisgæslan kíkti við hjá okkur í gær en þetta var hefbundið eftirlit og fundu þeir að sjálfsögðu ekkert að hjá okkur en þessir herramenn stoppuðu í 1-2 tíma um borð hjá okkur en stungu af rétt fyrir hádegismat, þeir vissu greinilega ekki hverju þeir voru að missa af því kokkurinn bar fram dýrindis lúðu og lúðusúpu.





13.04.2009 13:33

2 dagar í stressi!

Góðan daginn það er óhætt að segja að borðsalurinn hafi verið rafmagnaður síðustu 2 kvöld hjá okkur en fyrir þá sem fylgjast ekki með boltanum þá voru stórleikir í meistaradeildinni. Gunni og Ómar fengu rimmu á milli sín (Chelsea - Liverpool) og svo sem ekkert óvanir þeim rimmum en þessi var mögnuð eins og flestir vita og endaði með því að glottið er ekki enn farið af Gunna. Í gær var svo stýrimannsvaktin ein stresshrúga en þar á bæ eru 3 Man utd aðdáendur og 2 Arsenal menn en þetta fór allt eins og spáð var og er lítið um svekkelsi í dallinum eins og er....


Læt fylgja myndir frá síðasta sunnudagsmorgun er egginn voru afhent.

Bjössi afhendir eggin

Nonni átti nú ekki von á að fá egg.... og var að vonum glaður

Ný vaknaður og úðar í sig



Ómar kláraði sitt egg á 10 min !!

12.04.2009 02:43

Gleðilega páska

Allt fínt af okkur hér um borð í Guðmundi í Nesi. Eins og fram kom í síðasta bloggi þá er fjöldi skipa hér á Torginum, og fer þeim fjölgandi ef eitthvað er.

Það hefur verið fínast veður síðustu 2 sólarhringa, en þannig er það nú ekki alltaf hérna. Við fengum páskahretið snemma þetta árið og myndin hér að neðan var tekin í síðustu viku við hálf kuldalegar aðstæður.

Annars óskum við öllum gleðilegra páska og farið varlega í súkkulaðinu.

11.04.2009 01:21

Allir mættir á svæðið!

Við viðurkennum það fúslega að við erum ekki að standa okkur í blogginu en það stendur til að bæta úr því.

Torgið virðist vera vinsælasta bleyðan í dag en í kvöldmatnum voru ein 13 skip á svæðinu. Það fer nú örruglega að styttast í að menn fari að reyna við úthafið og er bara að vona að það verði einhver veiði hjá skipunum í ár en mér skilst að árið í fyrra hafi ekki verið neitt sérstakt.

Kokkurinn hefur farið hamförum eins og vengjulega en hann varð að taka á stóra sínum fyrstu dagana í túrnum því hann Denni okkar átti afmæli daginn eftir að við fórum út og svo tók sunnudags steikin við. Það má búast við einhverju svakalegu frá kallinum um páskana.



Vigri á toginu

08.04.2009 01:19

Mikið ands.... er rólegt

Það er lítið að frétta af Torginu núna. Rosalega rólegt yfir öllu og spáin ekki góð. Það er fámennt en góðmennt hérna núna, aðeins við og nokkur norðanskip.

Það er eitthvað djúpt á myndarvélunum en vonandi munu strákarnir smátt og smátt draga þær fram og við smellum þá myndum inn um leið.

04.04.2009 17:06

Á útsími

Þá er fjórða veiðiferð ársins hafin, eða kannski réttara sagt veiðiferð númer 2 hjá Stjána og Co. Við ætlum að gerast svo brattir að lofa reglulegu bloggi næsta mánuðinn og það er aldrei að vita nema nokkrar myndir slæðist með.

Annars er allt fínt að frétta, Jóel og strákarnir hans lönduðu fínum túr og voru sáttir við að komast í frí eftir frekar leiðinlega veðráttu síðustu vikuna.

    Flettingar í dag: 88
    Gestir í dag: 41
    Flettingar í gær: 178
    Gestir í gær: 69
    Samtals flettingar: 613200
    Samtals gestir: 158742
    Tölur uppfærðar: 10.2.2012 08:25:22