Færslur: 2009 Mars
28.03.2009 13:22
Dauft yfir torginu
23.03.2009 15:41
Ónefndur úr leik
Saknaðar kveðjur bloggarar
Alex með góðan feng
Guðjón (Úddi) að vikta rauðu strákana
18.03.2009 18:24
stýrimannsvaktin mætt.
kveðja MOTTUGENGIÐ.
ps það er engin heitur í giskinu með aflann.
17.03.2009 18:28
Sá ónefndi óstöðvandi
Bátsmannsvaktin er búin að sjá um bloggið síðustu 3 túra og ekki komið snefill frá stýrimannsvaktinni ekki einu sinni myndir þannig að það er tímabært að velunnarar síðunnar kommenti og reki nú á eftir þeim enda miklu meira um blogg ef báðar vaktirnar blogga.Og vil bátsmannsvaktinn segja KOMA SVO STRÁKAR svo urðum við uppvísir að því að það er heljarinnar ljóðskáld á stýrimannsvaktinni og hann gæti verið með vísnahorn á síðunni.Annars af fréttum af torginu:Það er búið að vera hálf tíðindalaust frá helginni en gott veður þó frá sunnudegi.veiðin dagaskipt.Fréttum að LEEDSARARNIR hafi unnið um helgina og ætlaði allt um koll að keyra ,menn hópuðust á gangana í sigurvímu og var þar ónefndur fremstur í fríðum flokki.
Nú ætlum við að vera með smá spurningu til velunnara síðunnar og byðja þá um að giska hvað eru mörg tonn af grálúðu hér á ferðinni.Gæti verið verðlaun fyrir réttan aðila ef að ónefndum þóknast svo.Hann á heiðurinn af þessum myndum og veriði nú dugleg að gefa honum komment það er víst búið að hrauna nóg yfir greyið samt.
kv 50 round club
Eins og sjá má er bakborðsgengið bísna sennilegt að sjá að vanda
16.03.2009 09:42
Umfjöllun fjölmiðla um sjávarútveg
Máli mínu til stuðnings bendi ég á tvær fréttir. Sú fyrr er af mbl.is og fjallar um íslenskan "togara" sem er að landa aflanum í Bretlandi. Með greininni er birt mynd af umræddum "togara" og ef fréttamaðurinn hefði minnstu þekkingu á sjávarútvegi sæi hann strax að umrætt skip er ekki togari heldur línubátur. Hægt er að sjá fréttina hér Íslenskum skipum fagnað í Grimsby
Þetta er reyndar ekki fyrsta fréttin með þessum misstökum. Hér er ein eldri Fleiri togarar landa í Grimsby
Hin fréttin er á visir.is og þar er verið að fjalla um grásleppuveiðar. Myndin sem birt er með fréttinni er alveg kostuleg. Ef þetta er nýr grásleppubátur þá skal ég éta sokkinn minn. Fréttina má sjá hér Grásleppuvertíð á fullt
15.03.2009 20:03
Ægir og Kári
Hér á gvendinum hafa ekki verið unninn mikil afrek um helgina sökum þess að kári lét heyra allsvakalega í sér og ægir var nú eitthvað pirraður líka. En það er mál manna að nú sé skollið á vor og bara bongó blíða (mega tan) framundan. Hafa menn þá um helgina haft meiri tíma til að einbeita sér að áhugamálunum s.s. facebook og fótbolta en það síðarnefnda fór víst ekki alveg eins til var ætlast, sem var mjög gott! En við tókum nokkrar myndir af atburði helgarinnar......
Hér eru kallarnir á toginu og ægir að berja að dyrum...
Hér eru kallarnir svo byrjaðir að hífa og eru þetta þeir Alex og Einar the eagle að forða sér undan einni kaldri og höfðu þeir betur í þetta skiptið.
13.03.2009 16:39
litli netamaðurinn 40 ára
Litli netamaðurinn okkar átti afmæli í dag hann varð 40 ára og er það mál manna að hann hafi stækkað í nótt en enn notast hann við dvergasteininn í pökkun.hann kom með mackintosh dós
með sér en vaktin snéri hann niður og stal af honum dósinni og hámaði sælgætið í sig.En annars óskum við honum kærlega til hamingju með ( Stóráfangann )
Hér stendur stoltur afmælisdrengur við nammikrúsina sína
Hér afhendir Ragnar Gylfa nammidósina sem Gylfi kom sjálfur með
Hér er búið að stéla dósinni af afmælisbarninu
Eins og sjá má á síðustu myndinni þá var sukkið alveg gríðarlegt og liggja menn að vana lemstraðir um allt skip og fór ónefndur fyrir hópnum að venju
12.03.2009 15:11
Ónefndur og félagar í úrslætti
Ragnar gerir sig kláran í að raða kössunum á bandið
Einar hálf kuldalegur að sjá
r
Jóhann Freyr tekur hausakassa af lestarbandinu
Málin rædd í borðsalnum
Ragnari og Gylfa finnst greinilega gaman að láta taka af sér myndir
Flott uppstilling strákar
Stefán forðar sér frá einni fyllunni
12.03.2009 05:38
Myndir
Jæja eftir mikla og þrotlausa lesningu á myndavélabæklingunum þá tókst okkur loksins að taka nokkrar myndir en það er þó mest ónefndum að þakka og það má í raun segja að hann á allan heiður af þessu og einnig kom hin gríðarmikla tungumálakunnátta hans að góðum notum og skipti ekki máli hvort hann þýddi á hebresku latnesku eða færeysku og hér er afraksturinn.
Hér er Gunnþór að REYNA að kenna gömlu skápunum á facebook en
svo virðist sem Stefán sýni þessu meiri áhuga en Einar
Hér er Valdi að raða kössunum í lestinni
Árgangur "81 að störfum
Félagarnir
Valur og Gunnþór við úrsláttin
Pönnum raðað í tækið
Þetta voru myndir frá bátsmannsvaktinni og koma fleiri myndir brátt