Blogg

28.3.2009

Dauft yfir torginu

Jæja það er komið að smá bloggi.Það er búið að vera hrikalega dauft yfir veiðunum síðustu daga hér á torginu,eitthvað ástand er á slóðinni sem veldur því að það er EKKERT fiskerý.Svo spáir ekki vel næstu daga.Við förum að gera okkur klára í þrif og það sem fylgir síðustu vikunni þannig að það er spurning hvort þetta verði síðasta bloggið í þessari veiðiferð.Annars eru allir í góðu skapi þrátt fyrir lítið fiskerí og slæma veðurspá og hlakkar mönnum alltaf jafn mikið að komast heim til sín.

Skrifað 28.3.2009 kl. 13:22 af GINarar

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.3.2009

Ónefndur úr leik

Jæja þá er komið að smá bloggi.Það bættust við tvö skip á torgið í fyrradag það eru Brimnesið og Snæfellið EA áður Akureyrin.það er búið að vera smá kropp í gullax karfa og lúðu sem sé mikið koktail fiskerí.Við hefðum vilja sjá meiri lúðuveiði en það er ekki á allt kosið.Það er búið að vera vorblíða í heila 8 daga á torginu sem segir okkur að það fari nú að bresta á sumar eftir ca 1 túr enn.Annars er bara allt meinhægt að frétta og stýrimannsvaktin stóð sig vel í síðustu bloggfærslu og vonum við að þeir láti ekki deigan síga í þeim efnum.Motturnar eru búnar að dafna vel síðan í síðustu færslu og fara þær að verða myndefni fyrir velunnara síðunnar.Búið er að panta veiðileyfi fyrir kallana upp á Arnarvatnsheiði í Júní og er það valinkunnur hópur og fer Ragnar fyrir flokknum að venju.Áf óviðráðanlegum orsökum verður enginn ÓNEFNDUR framar á síðunni og þökkum við honum kærlega fyrir að hafa lagt sitt af mörkum fyrir að hafa gefið okkur síðuriturum innblástur í skrif okkar og vitum við hreinlega ekki um hvað við eigum að skrifa á komandi tímum.

Saknaðar kveðjur bloggarar

                                     Alex með góðan feng


                       Guðjón (Úddi) að vikta rauðu strákana


Skrifað 23.3.2009 kl. 15:41 af GINarar

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.3.2009

stýrimannsvaktin mætt.

Góðan dag góðir landsmenn. vegna fjölda áskorana er stýrimannsvaktin sest við skriftir og eftir að vera búnir að raða í okkur soðning að hætti Níelsar teljum við okkur færa í flestan sjó í netheimum, að öllu leiti nema beðið er eftir að ónefndur blási til námskeiðs fyrir stýrimannsvaktina og kenni þeim leyndardóma ljósmyndunar. þannig að ef vel gengur í þeim flóknu fræðum er jafnvel von á myndum frá þessari vakt fyrir páska. annars er heldur lítið um að vera á torginu um þessar mundir en kallarnir snöruðu þó einn gráan í morgun (Hákarl) og var hann snarlega tekin og skorinn eftir kúnstarinnar reglum í þágu starfsmannafélagsinns. Eitthvað gengur illa hjá okkur að fá ljóðskáld vaktarinnar til að opna sig en vonum að með vaxandi sjálfstrausti verði hann farinn að raða hér inn stökum af sinni alkunnu snilld áður en túrinn er úti. en þá að máli málana, heyrst hefur á göngunum að Arna hans Einars sé við það að fjárfesta í sleða eins og hún er búinn að vera að gera síðan í haust. og vonumst við til að dæmið gangi upp hjá henni fyrir rest. Biðjum að heilsa af torginu.

kveðja MOTTUGENGIÐ.

ps það er engin heitur í giskinu með aflann.

Skrifað 18.3.2009 kl. 18:24 af GINarar

Bein slóð á færslu

15 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.3.2009

Sá ónefndi óstöðvandi

Bátsmannsvaktin er búin að sjá um bloggið síðustu 3 túra og ekki komið snefill frá stýrimannsvaktinni ekki einu sinni myndir þannig að það er tímabært að velunnarar síðunnar kommenti og reki nú á eftir þeim enda miklu meira um blogg ef báðar vaktirnar blogga.Og vil bátsmannsvaktinn segja KOMA SVO STRÁKAR svo urðum við uppvísir að því að það er heljarinnar ljóðskáld á stýrimannsvaktinni og hann gæti verið með vísnahorn á síðunni.Annars af fréttum af torginu:Það er búið að vera hálf tíðindalaust frá helginni en gott veður þó frá sunnudegi.veiðin dagaskipt.Fréttum að LEEDSARARNIR hafi unnið um helgina og ætlaði allt um koll að keyra ,menn hópuðust á gangana í sigurvímu og var þar ónefndur fremstur í fríðum flokki.

Nú ætlum við að vera með smá spurningu til velunnara síðunnar og byðja þá um að giska hvað eru mörg tonn af grálúðu hér á ferðinni.Gæti verið verðlaun fyrir réttan aðila ef að ónefndum þóknast svo.Hann á heiðurinn af þessum myndum og veriði nú dugleg að gefa honum komment það er víst búið að hrauna nóg yfir greyið samt.

kv 50 round club


        
Eins og sjá má er bakborðsgengið bísna sennilegt að sjá að vanda



Skrifað 17.3.2009 kl. 18:28 af GINarar

Bein slóð á færslu

13 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

16.3.2009

Umfjöllun fjölmiðla um sjávarútveg

Stenst ekki að setja inn smá hugleiðingar hér eftir að hafa lesið tvo af stærstu vefmiðlum landsins í morgun. Það er alveg með ólíkindum hvað margir fréttamenn virðast vera illa að sér þegar kemur að útgerð og öðrum hlutum íslensks sjávarútvegs.

Máli mínu til stuðnings bendi ég á tvær fréttir. Sú fyrr er af mbl.is og fjallar um íslenskan "togara" sem er að landa aflanum í Bretlandi. Með greininni er birt mynd af umræddum "togara" og ef fréttamaðurinn hefði minnstu þekkingu á sjávarútvegi sæi hann strax að umrætt skip er ekki togari heldur línubátur. Hægt er að sjá fréttina hér Íslenskum skipum fagnað í Grimsby 

Þetta er reyndar ekki fyrsta fréttin með þessum misstökum. Hér er ein eldri Fleiri togarar landa í Grimsby

Hin fréttin er á visir.is og þar er verið að fjalla um grásleppuveiðar. Myndin sem birt er með fréttinni er alveg kostuleg. Ef þetta er nýr grásleppubátur þá skal ég éta sokkinn minn. Fréttina má sjá hér Grásleppuvertíð á fullt

Skrifað 16.3.2009 kl. 9:42 af Gísli

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

15.3.2009

Ægir og Kári

Skoða nánar

13.3.2009

litli netamaðurinn 40 ára

Skoða nánar

12.3.2009

Ónefndur og félagar í úrslætti

Skoða nánar

12.3.2009

Myndir

Skoða nánar

9.3.2009

Jolla gengi komið á torgið

Skoða nánar

3.3.2009

Blogg pása

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 105
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 251
Gestir í gær: 65
Samtals flettingar: 417699
Samtals gestir: 108680
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 07:26:42