Færslur: 2009 Febrúar
28.02.2009 12:55
Úrslitin um helgina
Myndin hér að neðan er af Nonna og Gísla, kátum í gömlum en góðum Man Utd bolum. Með þessari mynd fylgir kveðja til Lúlla og Sissa sem eru báðir Man Utd stuðningsmenn (þó svo að annar eigi víst eftir að viðurkenna það fyrir sjálfum sér).
26.02.2009 19:41
Múkki eða Vélstjóri ??
Eitt skiptið, þegar vélstjórinn dröslaðist niður í vaktklefa og kom sér fyrir framan tölvuna heyrði hann ankannaleg hljóð undir borðinu hjá sér. Hann stakk tríninu undir borðið og sá þar fullvaxinn múkka í makindum undir borðinu. Vélstjóranum brá alveg horttalega en lét ekki öskrin í múkkanum hræða sig meira og falaðist eftir honum, þá varð uppi fótur um fit og hófst þar mikill eltingarleikur sem endaði með því að Vélstjórinn náði kvikindinu og kom honum út. Þegar vélstjórinn var búinn að þessu fór hann vitaskuld rakleitt upp í borðsal og í hverju skrefinu sem hann tók magnast reiði hans. Þegar hann kom svo inn í borðsal hellti hann sér yfir mannskapinn fyrir þetta ódæði! Hann komst að vísu fljótlega í þrot um hvaða skaða múkkinn hefði geta gert og endaði á því að segja ... Helvítis Múkkinn hefði geta drepið á vélinni! þá sprakk salurinn úr hlátri og vélstjórinn fór í þjósti niður í vél aftur. Eftir þetta hafa múkkar sem hafa slæðst inná dekkið á Hrafni ávalt verið kallaðir vélstjórar.
Vélstjóri á flugi ??
25.02.2009 14:28
Púkarnir á neðstu hæðinni
Bjöggi og Hjalli voru á fullu í viðhaldsvinnu er einn af ljósmyndurum gin.is bar að dyrum á neðstu hæð skipsins. Þeir félagar segjast vera spenntir fyrir leikjunum í kvöld, Hjalli er Liverpool maður en Bjöggi heldur með þeim sem er á toppnum.
Bátsmaðurinn er búinn að vera frekar súr síðustu daga, það kom smá dauður tími hjá bátsmannsvaktinni og var ákveðið að taka smá bíó, hann vildi horfa á ABBA myndina en Gran Torino með Eastwood var valinn og er hann ekki enn búinn að jafna sig á því.
Hjalli með vasaljósið fræga
Hann stóð upp á koll þegar þessi mynd er tekinn
23.02.2009 11:22
Afmælisbarn dagsins
2. stýrimaðurinn á afmæli í dag. Hann er orðinn 36 ára en lítur ekki út fyrir að vera deginum eldri en 25 ára og 4015 dögum betur.
Hann verður að heiman í dag.
Hálf úfinn en í glæsilegum klassískum bol
Afmælishlaðborðið klukkan 9 í morgun
20.02.2009 01:09
Mennirnir í brúnni
Það hefur aðeins vantað upp á það að við höfum sýnt myndir af öðrum en okkur dekkurunum. Þetta stendur til bóta. Við byrjum á þeim sem manna brúnna.
Myndirnar voru teknar fyrir helgi og sýna þá Stjána skipstjóra og Heiðar yfirstýrimann á fullu í vinnunni.
Vek sérstaka athygli á sokkunum hjá Stjána, en þetta eru miklir happasokkar (karfasokkar) sem dætur hans gáfu honum.
Karlinn í rauðusokkunum góðu
Heiddi er hálfnaður með skeggið sem hann safnar í hverjum túr
18.02.2009 12:05
Myndir úr vinnslunni
Svo að við verðum ekki sakaðir um að eyða heilum mánuði í að borða bakkelsi með rjóma hjá honum Bjössa kokki ákváðum við að setja inn nokkrar myndir úr vinnslunni.
Þessar myndir eru teknar núna rétt fyrir hádegi en þá vorum við að resta vinnslu og klára að slá úr nokkrum tækjum.
Lilli og Alli að gera sig klára í að fara að slá úr tæki og Denni að ná sér í ruslapoka
Litli og stóri
Júlli stendur í gufunni sem myndast þegar verið er að afhríma tækinn
Jói að setja inn afurðarupplýsingar á skrifstofunni á millidekkinu
Gísli kemur úr lestinni
Hálf kuldalegur, eða jafnvel kindarlegur
15.02.2009 19:07
Pokaskipti
Mikið hefur verið rætt um fæðið okkar hér á síðunni en kokkurinn klikkaði ekki í dag frekar en fyrri daginn og var með lambafile með öllu tilheyrandi...
Að venju þá tókum við nokkrar myndir.
Bátsmannsvaktin að græja pokann
Ægir og Nonni
Karlinn eitthvað að skipta sér að...
Gunni og Nonni
14.02.2009 20:24
Gripnir glóðvolgir
Allir togarasjómenn fá að heyra það frá konunum að þeir verði nú að passa sig á að borða ekki of mikið á sjónum. Þetta séu bara endalausar steikur og rjómi á allt.
Hér um borð höfum við nú reynt að standa okkur í því að borða hollan mat eftir að hún Sonja vinkona okkar var með okkur í átaki árið 2007. En stundum gleyma menn sér.
Eins og sést á meðfylgjandi myndum þá eiga áhyggjur eiginkvennanna stundum við rök að styðjast. Sumir diskarnir voru svo svakalegir að myndavélin klikkaði þegar henni var beint að þeim (þú kannast við skammtana hjá þínum manni Sigurbjörg).
Grindarvíkurtröllið fær sér rjóma með smá köku
Sönnunargagnið sem Drífa hefur beðið eftir. Bananinn var settur inn á myndina til þess að þetta liti ekki eins illa út
Sumir eru bara nettir á því
12.02.2009 18:53
Það var rautt !!
Við erum nýbúnir að hýfa, ég stökk niðrí vinnslu og tók nokkrar myndir af stýrimannsvaktinni en því miður þá fann ég hvergi 2 stýrimann en ég hef nú lumskan grun um að hann hafi verið að leysa karlinn af í mat en menn hafa haft orð á því að 2 stýrimaður sé búinn að vera í óvengjulega góðu skapi síðustu 2 daga enda hefur hann sennilega góða ástæðu fyrir því.
Alli að flokka B karfan frá og raða inn á flokkarann
Denni við úrtínslubandið
Sá rauði á fleygiferð í hausarann
12.02.2009 01:08
Stund milli stríða
Og á milli þess sem menn vinna þá er slappað af og t.d. horft á fréttir og Kastljós. Ljósmyndari átti leið um setustofuna í kvöld í miðjum fréttatíma og smellti af nokkrum myndum.
"Glataði" sonurinn
Bátsmaðurinn lætur fara vel um sig
11.02.2009 01:01
Bjöggi kominn heim
Veðrið var ekki alveg eins og best var á kosið þegar að farið var á tuðrunni yfir. Þetta varð smá sull og ævintýri en fór allt vel fram. Engar myndir voru nú teknar af þessu enda niðamyrkur.
Hjalla vélstjóra líst ekki vel á mótorinn á léttabátnum eftir þetta og er kominn fram á fremstu hlunn með að úrskurða hann látinn.
09.02.2009 11:32
Hann á afmæli í dag
Það er blásið til afmælisveislu um borð í Guðmundi í Nesi í dag. Aðalgeir Jónsson (Alli) er 53 ára í dag. Kokkurinn verður með dýrindis þorrahlaðborð í dag og mun afmælisbarnið væntanlega gera því góð skil, eins og hans er von og vísa.
Annars allt við það sama hér. Myndarvélin er komin í leitirnar og nýjar myndir birtast vonandi bráðlega.
Afmælisbarnið
07.02.2009 13:19
Allt við það sama
Mjög blandaður afli hér núna og mætti vera meiri. Síðan er spáin ekkert til að hrópa húrra fyrir.
04.02.2009 20:41
Glataði sonurinn snýr aftur
Annars er það að frétta að Jóel og Co. lönduðu á þriðjudaginn og voru með fínann túr. Við fórum út strax um kvöldið og lofum að vera duglegir að blogga og setja inn myndir.
01.02.2009 00:57
Torgið skartar sínu fegursta
Jæja þá er enn komið að smá bloggi.Eins og titill færslu segir þá er torgið að sýna sitt fegursta og vilja menn meina að það líkist pollinum í Eyjafirði á fögru vorkvöldi.Smá nudd hefur verið á grásunni síðustu daga en heldur er að draga úr herlegheitunum og er silver smeltinn farinn að sýna vörpunni mikinn áhuga ónefndum ljósmyndara til mikillar gleði.karfi gullax og lúða er blanda dagsins og eru menn í þrifum samfara þessari banvænu blöndu.Hvissast hefur út í messanum að lengingin (nei meinti nú aðgerðin) hafi tekist með ágætum á litla netamanninum og vilja bjartsýnustu menn (Einar) trúa því að hann geti nú skipt um hleranemana sjálfur,því menn eru orðnir langþreyttir á að lyfta honum upp í hlerann.En annars er allt gott að frétta héðan af torgi hins himneska og ætlar túrinn að enda með stæl í eldhúsinu hjá brytanum því að það eru fjögur afmæli í röð að bresta á.Við verðum svo í landi með pomp og pragt á þriðjudagsmorgunn og reiknum með að spússur okkar taki á móti okkur opnum örmum á kajanum.gott í bili og kannski látum við myndir inn seinna af lokasprettinum ef ónefndur ljósmyndara þóknast svo.
hvernig er það með gesti síðunnar veit einhver hver þessi ónefndi ljósmyndari er???????
gæti farið svo að verðlaun yrðu í boði fyrir rétt svar.
- 1