Blogg
26.1.2009
komnir heim (á torgið)
Strákarnir af Brimnesinu koma með teygjur og öxul í flokkara
Skipt um lása aftan í hlera
Karfahal
22.1.2009
Yfirvélstjóri 43 ára
Í dag varð Agnar yfirvélstjóri 43 ára og fjölmennti áhöfnin af því tilefni á Goldfinger og slettu ærlega úr klaufunum. (nei nei bara í huganum).En það var eins og við manninn mælt þegar stórviðburðir eiga stað hér á Gvendinum þá snaraði kokkurinn fram úr erminni líka þessari dýrindis veislu sem samanstóð af þurrkrydduðum lambadrifhásingum og bearnaise caloríusprengju og í desert fengu allir rjómatertu sjokk.En það var eins og fyrri daginn að menn kunnu sér ekki hóf og lágu menn lemstraðir hver í sínu horni eftir ofátið og fór þar fyrir hópnum ónefndur?...................Og vill áhöfnin óska Agnari til lukku með þennan áfanga.Ónefndi ljósmyndari síðunnar var aldrei þessu vant á staðnum og náði að handsama augnablikið(kodak moment)þegar Agnar fekk sér að smakka á kræsingunum og fáum við hér að sjá afraksturinn.
Agnar að fá sér af kræsingunum og sést glytta í stéfán frá Sultum
20.1.2009
Gómsætt súrmeti
óheyrilega í sig og liggja menn nú lemstraðir um allt skip eftir ofátið og fór þar ónefndur ljósmyndari síðunnar fyrir hópnum og það skýrir myndaleysið og hefur það hvissast út herna á göngunum að það verði annar í þorra í kvöld.En annars af máli málanna grálúðuveiðar.Vonsku veður og haugasjór er búin að vera í marga daga og aðeins fært með eitt troll þannig að ekki hefur runnið mikið vatn til sjávar af millidekkinu þessa bræludaga.
sendum facebook kveðju til landsmanna.
18.1.2009
Túrinn hálfnaður
Jæja þá er túrinn hálfnaður og ekkert merkilegt skeð það sem af er túrs,þetta gengur bara allt sinn vanagang.Við vorum einmitt að tala um það á föstudaginn að við værum búnir að vera heppnir með veður það sem af væri nýju ári fyrir utan þessa brælu um síðustu helgi.En það var eins og við manninn mælt að það er búið að vera bræla og vonskuveður síðan og verður fram á þriðjudag.
Erum að hnoðast með eitt troll í miklum straum og haugasjó þessa stundina en í gær fengu allar vörpurnar hvíld á sama tíma sem gerist ekki oft herna á Nesbúanum.Við fengum einn hákarl í morgun og er það fyrsti hákarlinn í túrnum. Við sendum ónefndan ljósmyndara á staðinn en auðvitað náði hann ekki myndum fyrr en hákarlinn var allur.Hann náði þó að mynda þegar síðustu beiturnar duttu ofan í móttökuna og verðum við að gera okkur þá mynd að góðu.Annars er bara allt gott af okkur af frétta og vill Hagfræðingur Gin.is koma til skila saknaðar og baráttukveðju til litla netamannsins sem á um sárt að binda þessa stundina.
Stéfán og Úddi henda beitunum ofan í móttöku
16.1.2009
Guðmundur Bárðarson 50 ára
Á miðvikudaginn 14 jan varð Guðmundur Bárðarson 50 ára og var mikið um veislur þann daginn.Af
okkur er bara allt gott að frétta en veiðin mætti vera betri.Veðrið er búið að vera gott í vikunni og enn er mikið af skipum á slóðinn en aflinn frekar tregur.Við látum eina mynd af afmælisbarninu fljóta með
Afmælisbarnið að skera sér sneið af brauðtertu
