Færslur: 2008 Desember

23.12.2008 22:00

Gleðileg Jól


Áhafnir Guðmundar Í Nesi RE

Óska landsmönnum Gleðilegra Jóla

og farsældar á komandi ári.


Sjáumst hress á nýju ári.

21.12.2008 17:02

Síðustu metrarnir

Það er farið að líða að lokum þessa túrs. Erum byrjaðir að þrífa skipið hátt og lágt. Það spáir nú ekki skemmtilega fyrir heimstímið en það verður bara að taka því eins og hverju öðru hundsbiti.

Ætli við látum þetta ekki vera síðasta bloggið fyrir jól en setjum inn einhverja línu á milli hátíða.

Óskum gestum gin.is og landsmönnum öllum gleðilegra jóla.


Stýrimannsvaktinn sveitt eftir hífopp.

 

19.12.2008 19:08

Fjallmyndarlegir menn

Það verður nú að viðurkennast dömur að þetta eru fjallmyndarlegir menn! Og þeir eru á öllum aldri, einn er á þrítugsaldri, einn á fertugsaldri, einn á fimmtugsaldri og einn á sextugs.

En stóra spurningin er þessi. Hver keypti þessar úlpur upphaflega og hvar? Þær eru algjör snilld.


Ægir, Denni, Ómar og Gunni. 4/6 af bátsmannsvaktinni.

 

19.12.2008 06:47

Allt er fertugum fært

Annan daginn í röð er blásið til afmælisveislu hér um borð í Guðmundi í Nesi. Í dag er það Jón Ólafur Ragnarsson, netamaður, sem á stórafmæli. Nonni er orðinn fertugur.

Í tilefni dagsins heldur Jón veislu hér um borð í Guðmundi á milli þrjú og fjögur í dag. Vinum og vandamönnum er boðið. Við erum staddir á 65°41,6 N og 27°52,5 V. Það þarf ekki að gera boð á undan sér.

Við strákarnir í áhöfninni óskum Nonna hjartanlega til hamingju með stóráfangann.


Drengurinn ber aldurinn vel. Og takið eftir því hvað hann er í flottum bol.

 

18.12.2008 02:19

Hann á afmæli í dag

Gunnar Finnur Gunnarsson, yngsti áhafnarmeðlimurinn, er 24 ára í dag. Við óskum honum til hamingju með daginn og óskum honum góðs gengis í að safna skeggi með hækkandi aldri.

Einnig biðjumst við velvirðingar á bolnum sem hann er í á myndinni.

17.12.2008 13:38

Björgunaræfing

Við notuðum dauðan tíma eftir hádegi í dag til að hressa upp á kunnáttuna í meðferð á slösuðum manni. Við smelltum Jóhannesi (sem er nú ekki sá minnsti hér um borð) á sjúkrabörur, fórum yfir það hvernig það á að festa hann og síðan var honum dröslað fram í sjúkraklefa.

Þegar að æfingunni var lokið og við að fara yfir hana komu upp margar skemmtilegar tillögur um það hvernig hægt væri að misnota sér þá staðreynd að Jóhannes var ennþá fastur við börurnar en því miður komst engin þeirra í framkvæmd.


Jói borinn út úr setustofunni

15.12.2008 18:58

Ostaveisla

Vorum að hífa núna um kvöldmatarleitið. Það var mikill ostur í báðum pokunum, ásamt einhverju af grálúðu. Bátsmannsvaktin stóð í ströngu við að týna ostinn úr móttökunni og hnýta fyrir þegar að aðstoðarljósmyndara gin.is bar að.

Annars bíðum við spenntir eftir 18. og 19. des því þá verða tvö afmæli hér um borð, þar af eitt stórafmæli. Jón Ólafur Ragnarsson verður 40 ára þann 19. des. og Gunnar Finnur verður 24 ára.


Denni að hnýtar fyrir pokann. Osturinn í bakgrunn


Ægir og Gunni að setja byssuna í pokana


Ómar að aðstoða Denna við að hnýta fyrir. Sést í bakið á Bjarna


Karlinn veitir bátsmanninum stuðning

 

 

13.12.2008 20:28

Slæðan lánuð !

Brimnesið varð fyrir því óláni að missa 2 troll hérna út á torgi en þeir byrjuðu að slæða í morgun að ég best veit, þeir komu yfir til okkar í hádeginu í dag og fengu lánaða slæðuna okkar sem er tölvuvert stærri en þeirra.

Við sendum þeim baráttukveðjur og vonum að þeir nái þessu upp sem allra fyrst.



Vígalegur


Ekki annað hægt að segja en að þetta séu lík skip


Gummi Kr (til hægri) Stýrimaður á Brimnesinu stjórnar aðgerðum


Slæðan tilbúin í lánsför mikla !


Farnir að slæða

Ég vill biðja fólk um að virða höfundarrétt ljósmyndarans

Gunnar Finnur

13.12.2008 15:26

Vont veður

Það var bandvitlaust veður hjá okkur síðustu nótt, eins og reyndar hjá flestum landsmönnum. Við lónuðum í ca. 8 tíma. Vindmælirinn hjá okkur sló í 95 hnúta og mun það vera það mesta sem hann hefur sýnt hér um borð. Til allrar hamingju er Guðmundur í Nesi gott sjóskip þannig að það fór ekki illa um mannskapinn á meðan á þessum látum stóð.

11.12.2008 18:54

Einn af þessum dögum

Dagurinn í dag er búinn að vera "einn af þessu dögum" hér á Torginu. Mörg skip hafa verið að lenda í veseni með trollin. Það hefur nokkuð um rifrildi, gat á poka og síðan missti eitt skip troll. Við höfum ekki farið varhluta af þessu og rifum illa í morgun. En eins og má sjá á mynd hér að neðan væsir svo sem ekkert um okkur í netavinnunni hér um borð.

Vorum í hálfgerðu veseni með netið en vélstjórunum tókst að loks að fá það í lag með því að endurræsa kerfið ítrekað. Þyrfti að hafa CTRL - ALT - Delete á þessu dóti.

Kokkurinn skreytti í morgun þannig að það er komin rífandi jólastemming um borð og jafnvel ólíklegustu menn farnir að safna jólasveinaskeggi.


Ragnarssynir bensla. Eins og sjá má er aðstaðan fín. Ekki amalegt að vera á stuttermabol við netavinnu um miðjan desember.


Kokkurinn á fullu í eldhúsinu. Hann gaf sér nú samt tíma til að aðstoða okkur við að setja undirvæng á í dag.


Jólatré og jólasveinn

09.12.2008 13:17

Jólin koma

Brælan sem 2. stýrimaður spáði hér fyrir nokkrum dögum er mætt á svæðið. Vonandi stendur hún stutt yfir og friður færist aftur yfir Torgið.

Við erum annars komnir í jólaskap og vonandi fara jólaskreytingarnar upp fljótlega. Hlustum á jólalög daginn út og inn og skiptum ört á milli útvarpsstöðva ef þær eru ekki nógu duglegar að spila jólalögin.

Rifum stjórnborðstrollið lítilega í gær en vorum ekki lengi að redda því. Á myndinni hér að neðan er Gísli nývaknaður og hress mættur með eina tvöfalda rauða í hægri hönd.

08.12.2008 06:54

Veislan mikla

Kokkurinn er búinn að fara á kostum í dag. Í hádeginu var eftirfarandi matseðill.

Forréttir
Gæsapate
Grafin gæs með sósu og ristuðu brauði

Aðalréttir
Gæsabringur a-la Bjössi
Gæsalæri í gráðostasósu
Gæsalifur í sósu
Lambalæri

Með þessu voru síðan bakaðar kartöflur, sósur, smjörsteiktir sveppir, ferkst salat, ávaxtasalat og ýmislegt annað.

Eftirréttir
3 tegundir af ís með ávöxtum og sósu

Menn voru varla búnir að renna þessu niður þegar komið var að kaffi. Kaffihlaðborðið var frekar fátæklegt enda allir vel saddir eftir veisluna. En samt var eftirfarandi á boðstólnum:

Vöfflur með rjóma
Nýbakaðar smákökur eftir uppskrift Jóa Fel
Súkkulaði hnallþóra
Hjónabandssæla
Kleinur

Þessu var skíðan skolað niður með kakó og rjóma.

Bjössi kokkur er náttúrulega snillingur!!!


Kokkurinn við veisluborðið

05.12.2008 17:09

Lognið á undan storminum

Í augnablikinu er fínt veður hjá okkur hér á Torginu en spáin er ekki góð. Gerum ráð fyrir brælu í nótt eða fyrramálið. Ennþá mikið af skipum hér, en gera má ráð fyrir að þeim fækki nú eitthvað fyrst að spáin er svona slæm.

Kokkurinn var með pitsuveislu í hádeginu og fregnir herma að Keli bátur hafi klárað að borða um klukkan tvö í dag.


Stýrimannsvaktin fær sér smá kaffisopa áður en þeir skella sér í vinnsluna

03.12.2008 19:22

Bræla

Það skall á bræla í gærkvöldi og því hættum við að draga tvö troll á miðnætti og köstuðum einu. Erum búnir að vera að draga með einu í dag. Skipum hefur fækkað hér á Torginu og frekar rólegt yfir öllu.

Vélstjórarnir hafa verið duglegir að lagfæra ýmislegt smálegt á millidekkinu en síðan er stefnan að fara betur yfir það á milli jóla og nýárs.

Bjöggi að yfirfara höfuðlínustykki. Notkunin á vasaljósinu er í CSI stíl.

 

02.12.2008 18:54

Allt við það sama

Hér gengur allt sinn vanagang, vinna, éta, sofa. Rifum nokkuð illa í gær en það er ekkert sem vefst fyrir mannskapnum.

Erum búnir að ná góðum tökum á nýju vinnslunni og menn eru almennt sáttir.
Það á ennþá eftir að sníða af smávægilega vankannta en þegar að það verður komið í lag þá verður þetta magnað.

Látum fylgja með nokkrar myndir frá fyrstu dögum þessa túrs.


Unglingarnir á bátsmannsvaktinni


Júlli við flokkarann


Gunni og Denni að skafa og sporðskera

´
Bátsmaðurinn að vikta


Og yfirvélstjórinn með kræsingar að hætti Bjössa kokks

  • 1
Flettingar í dag: 82
Gestir í dag: 39
Flettingar í gær: 178
Gestir í gær: 69
Samtals flettingar: 613194
Samtals gestir: 158740
Tölur uppfærðar: 10.2.2012 08:03:57