Blogg
23.12.2008
Gleðileg Jól
Áhafnir Guðmundar Í Nesi RE
Óska landsmönnum Gleðilegra Jóla
og farsældar á komandi ári.
Sjáumst hress á nýju ári.
21.12.2008
Síðustu metrarnir
Það er farið að líða að lokum þessa túrs. Erum byrjaðir að þrífa skipið hátt og lágt. Það spáir nú ekki skemmtilega fyrir heimstímið en það verður bara að taka því eins og hverju öðru hundsbiti.
Ætli við látum þetta ekki vera síðasta bloggið fyrir jól en setjum inn einhverja línu á milli hátíða.
Óskum gestum gin.is og landsmönnum öllum gleðilegra jóla.
Stýrimannsvaktinn sveitt eftir hífopp.
19.12.2008
Fjallmyndarlegir menn
Það verður nú að viðurkennast dömur að þetta eru fjallmyndarlegir menn! Og þeir eru á öllum aldri, einn er á þrítugsaldri, einn á fertugsaldri, einn á fimmtugsaldri og einn á sextugs.
En stóra spurningin er þessi. Hver keypti þessar úlpur upphaflega og hvar? Þær eru algjör snilld.
Ægir, Denni, Ómar og Gunni. 4/6 af bátsmannsvaktinni.
19.12.2008
Allt er fertugum fært
Annan daginn í röð er blásið til afmælisveislu hér um borð í Guðmundi í Nesi. Í dag er það Jón Ólafur Ragnarsson, netamaður, sem á stórafmæli. Nonni er orðinn fertugur.
Í tilefni dagsins heldur Jón veislu hér um borð í Guðmundi á milli þrjú og fjögur í dag. Vinum og vandamönnum er boðið. Við erum staddir á 65°41,6 N og 27°52,5 V. Það þarf ekki að gera boð á undan sér.
Við strákarnir í áhöfninni óskum Nonna hjartanlega til hamingju með stóráfangann.
Drengurinn ber aldurinn vel. Og takið eftir því hvað hann er í flottum bol.
18.12.2008
Hann á afmæli í dag
Einnig biðjumst við velvirðingar á bolnum sem hann er í á myndinni.
