Færslur: 2008 Nóvember

30.11.2008 16:08

Torgfréttir

Hér á Guðmundi er allt fínt að frétta. Það eru margir togarar á bleiðunni að reyna við karfa.

Á mbl.is er viðtal við Jóel þar sem verið er að fjalla um gott gengi í síðasta túr. Viðtalið má sjá hér.

28.11.2008 20:50

Mættir á svæðið !! Reyklausir

Þá er Stjána gengið mætt um borð og byrjaðir á veiðum, við fórum frá olíubryggjunni um 5 leytið í gærnótt eftir að hafa dælt þessari yndislegu svartolíu um borð. Við vorum komnir á miðin um kvöldmatarleyti og bíðum nú spenntir eftir fyrstu hífingu.

Það eru smá mannabreytingar frá síðasta túr, Aríel hljóp í stýrimannskólann eftir smá pásu og mætti Denni aftur um borð eftir "smá" frí.

Við erum stoltir að segja frá því að áhöfnin er REYKLAUS!

Menn eru himinlifandi með að geta komist á netið um borð og eru flestir að skrá sig inn á facebook þessa stundina en svo virðist vera að síminn hafi lokað fyrir MSNið hér um borð.

Bátsmaðurinn að skrá sig inn á facebook !

27.11.2008 13:37

Komnir í land

Jóel og félagar komu í land í morgun eftur 26 daga túr. Túrinn gekk í alla staði vel, en mikið var að gera hjá strákunum þar sem m.a. þurfti að fínstilla nýja millidekkið og græja vélarrúmið eftir svartolíubreytinguna. Jóelsgengi er því komið í jólafrí.

Stjáni og Co fara út í kvöld í síðasta túr ársins (túr númer 10) og koma inn á Þorláksmessu. Þeir lofa að vera duglegir að blogga í túrnum.

25.11.2008 08:34

Endaspretturinn

Það er brjálað að gera í þrifum hjá strákunum sem eru úti á sjó og því hafa þeir ekki gefið sér tíma til þess að blogga. Við sem erum í landi höfum frétt að það hafi gengið vel hjá þeim og allir séu komnir í jólaskap.

Jóel og Co koma síðan í land á fimmtudagsmorguninn og við í Stjánagengi förum út sama kvöld og verðum á sjó fram að Þorkláksmessu.

20.11.2008 18:38

Lokavika

Jæja nú er síðasta vikan að byrja og verður nóg að gera það sem eftir lifir túrs í þrifum og afla. Það hefur verið góð karfaveiði í dag og búinn að vera mikill atgangur að koma rauðu strákunum í gegnum vinnsluna og niður í lest, en að sjálfsögðu hefst þetta allt að lokum.

Svo um eða upp úr helginni verður byrjað að þrífa skipið bæði að utan og innan. Síðustu dagar hafa gengið vel og búið að vera ágætis veður og höfum við verið með tvö troll í heila 3 daga sem fer að nálgast met á haustmánuðum hér á Torginu.

Annars verður þetta ekki lengra í dag. Bloggararnir eru að fara á Facebook og viljum við enn og aftur minna fólk á að kommenta.

kv.
GINarar

19.11.2008 17:02

Gamli tíminn

Á flakki mínu um internetið fann ég þetta skemmtilega myndband sem tekið er um borð í breska togaranum Artic Ranger hér við Íslandsmið á sjöunda áratugnum. Hér má sjá þegar áhafnarmeðlimir láta trollið fara og taka það. Einnig er sýnt frá vinnslunni, en Artic Ranger hefur verið frystitogari. Ég er hræddur um að menn létu ekki bjóða sér þessa vinnuaðstöðu í dag!

Ég fann enga mynd af Artic Ranger en hann var víst systurskip togarans Gaul sem fórst í Barentshafinu árið 1974 eins og frægt er.

Set því hér inn mynd af þeim togara.

Myndbandið má sjá hér.




18.11.2008 18:31

Veiðifélagið hvorki fugl né fiskur

Jæja þá er nú komið að smá bloggi sáum hér á kommentunum fyrir neðan að við séum orðnir svo lélegir í blogginu að okkur er líkt við fljótandi drullu um borð í Pétri Jónssyni.

Við ætlum að segja frá þegar við í Jóels gengi stofnuðum veiðifélagið "hvorki fugl né fiskur" og fórum í Hólmavatn upp á Arnavatnsheiði.

Lagt var af stað um morguninn 25 ágúst nokkrir félagar veiðifélagsins og voru flestir komnir upp að vatni um hádegi. Menn komu víða að af landinu en flestir norðanlands. Byrjuðu allir að veiða fljótlega eftir að þeir komu og veiddu vel fram á kvöld.og voru þetta fiskar frá 1,5 pundum og upp í 7,5 pund og fékk Elías Wium stærsta fiskinn og á hann eftir að fá verðlaun fyrir. Grillið var tekið með og var grillað um kvöldmatinn lærissneiðar og var rauðvín og bjór með.Eftir matinn heldu menn áfram að veiða og veiddu fram í myrkur.Gistu menn svo í fellihýsi og var hlegið mikið um kvöldið. Svo um hádegisbilið daginn eftir var lagt af stað heim á leið og voru menn sammála um að ferðir af þessu tagi væru bara til að gera móralinn betri og aðeins að kynnast betur fyrir utan vinnutíma. Aflin var á milli 15-20 fiskar og var hann sendur í reykofninn í Engidalnum. Látum nokkrar myndir fylgja úr veiðiferðinni.

Annars er allt gott að frétta af Hampiðjutorginu og skiptast á bliðviðri og brælur og látum við hrun efnahagsástandsins ekki trufla okkur mikið, satt að segja erum við orðnir þreyttir á fréttum sem hafa lítið breyst um 30 daga skeið.

kv bloggararnir



           Elli og Jóel með stærsta og minnsta fiskinn



                           Elli með þann stóra



                               Grillveislan góða

14.11.2008 18:55

Gjaldeyrisfundurinn

Eins og við sögðum ætluðum við að segja frá hinum mikla gjaldeyrisfundi úr vélarrúminu en við gefum hér Elíasi vélstjóra orðið

"Já þetta var stórmerkilegur fundur þegar ég var að hreinsa upp úr
kjölnum allskonar jamm.....var að pjakka með tein og á endanum á teininum var búið að útbúa smá pall..............þetta leit ekki ósvipað út og fægiskófla með löngu haldi nema miklu miklu minna
............ég teigði mig niður og fór með þetta á kaf í olíublandaða sullið........sá ekkert"heyrði ekkert vissi ekkert"hvað ég var að gera með þennan fræga tein því það voru yfir 100 gráðu heit rör allstaðar að stingast í mig og hávaðinn var svo yfirþyrmandi að ekki var hægt að komast að neinu..........nei og viti menn veskið hafði húkkast á þennan fræga tein svokallaða og eftir að veskið hafði verið hreinsað og þerrað kom í ljós að í þessu veski reindist vera vísakort með ótakmarkaðri heimild........Smávegis af rúblum....nokkrum schlotsyum..........100euros og rándýrir matarmiðar úr slippnum (lostæti)......já þetta er ein sú mest krassandi lífsreinsla sem á daga mína hefur drifið sem maskínisti hér á skipi til fjölda ára.En hef ég þó víða fjöruna sopið"

Og vildi Elías koma því á framfæri að búið er að hafa upp á eiganda veskisins og kemst það í hans hendur von bráðar.

Þá þökkum við honum Elíasi úr engidal fyrir þessa lífsreinslusögu.

Annars er allt gott að frétta af torginu og líður túrinn hratt og örugglega. 

kv bloggaranir



     Gummi Vinnslustjóri að pakka Lúðu 



                  Og hér eru nokkrar grásur á leið í pökkun



         Og hér gefur að líta stefán frá sultum og Jóhann norðfirðing
         að setja sig í stellingar til að skipta um glugga í undirbyrði.
         og vill stefán skila kveðju heim til Villu sinnar.

 

12.11.2008 18:33

Rauður dagur

Jæja þá er komið að smá bloggi. Við byrjuðum daginn með því að grynnka á okkur og erum komnir á karfaslóð og höfum við verið að gúffa í okkur rauðum strákum í dag. Og hér á bleyðunni er mikil traffík.

Heyrst hefur á göngunum að vélstjórarnir hafi fundið í þriftörnininni niður í kjöl á skipinu þykkt seðlaveski stíflað af evrum, matarmiðum og greiðslukortum. En nánar verður fjallað um gjaldeyrisfundinn í næsta bloggi

Lifið heil og munið að kvitta
Kv bloggarar í Nesi

10.11.2008 18:31

Brælan á undanhaldi

Jæja loksins er veðrið orðið skaplegt og köstuðum við tveimur trollum í nótt og ekki er annað að sjá en það verði blíðu veður í einhvern tíma að minnsta kosti (við köllum 15 vindstig blíðu hérna á Torginu).  Vélstjórarnir sjást ekki nema sótsvartir eða með tusku í hendinni þessa dagana enda eru þeir að þrífa vélarrúmið eftir slippinn.

Níels bryti var með villibráðarhlaðborð í gær og var það alveg hrikalega gott og smá tilbreyting í því.  Það er nefnilega þrennt sem skiptir miklu máli hérna út á sjó og það er gott fiskerí, góður matur og góður mórall.

Það er kominn góð lykt af skötunni sem nokkrir áhafnameðlimir eru með í verkun fyrir Þorláksmessu.  Miðað við magnið þá myndi þetta duga Jóhannesi í Múlakaffi í marga daga.  Við þökkum enn og aftur fyrir innlitið á síðuna og munið að gefa álit.

kveðja
Áhöfnin á Guðmundi í Nesi

08.11.2008 19:21

Nýbreytni

Góðann daginn kæru landsmenn til sjávar og sveita.

Sú nýbreytni átti sér stað á Torginu í dag að það skall á bræla sem ekki sér fyrir endann á og græjaði brytinn líka þessa eðal flatböku til þess að lyfta brúninni á mönnum. 

Annars er bara allt meinhægt að frétta héðan af Torgi hins himneska friðar og þökkum við um leið fyrir innlit og komment á síðuna og munið að kvitta.

Kveðja,
Yfirbloggarar

08.11.2008 13:43

Nýtt andlit í "Hin hliðin"

Búið er að uppfæra "Hin hliðin" og bæta þar við einum áhafnarmeðlim. Munum uppfæra þann lið nokkuð á næstunni.

Hvetjum alla sem heimsækja síðuna til að kvitta í gestabókina og skrá athugasemdir við blogg.

07.11.2008 18:35

Víraslagur

Við fengum óvæntan "glaðning " í dag um hádegisbilið þegar við vorum að renna niður ljúffengum þorski að hætti Níels yfirbryta. Eftir harða og langa festu kom í ljós að togvíraranir lágu allir saman í einum graut, báðir hlerar og lóðið í einum hönk. Eftir snarpa viðureign og snör handtök dekkmanna jafnt sem brúarmanna leystist fljótt úr flækjunni og þurfti að splæsa einn togvírinn. Stuttu seinna, eða um 2 klst eftir festu rann trollið aftur í sjóinn, tilbúið að fiska að nýju.

Þannig að ekki varð mikill skaði eða frátafir frá veiðum af þessum óvænta glaðning okkar og héldum við glaðir í bragði niður í vinnslu að vinna afla. En annars er allt gott að frétta af okkur og eru menn mjög sáttir við nýju vinnslulínuna. Sendum við hér eina mynd af glaðning dagsins.

Kveðja,
Yfirbloggararnir.



06.11.2008 09:57

Myndir af Jóels áhöfn

Erum búnir að bæta við myndum af áhöfninni hans Jóels. Til að skoða þær er smellt á valmöguleikann "Áhöfn Jóels" í valmyndinni hér til hægri.

  • 1
Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 310
Gestir í gær: 96
Samtals flettingar: 612941
Samtals gestir: 158639
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 01:42:00