Færslur: 2008 Október
30.10.2008 18:54
Prufusigling
Jæja það var farið í prufusiglingu út Eyjafjörðinn í gærkvöldi til að prufa svartolíubúnaðinn og reyndist hann í alla staði mjög vel. Lagt var af stað um 19:00 og komið aftur að bryggju um 21:00.
Karlarnir í slippnum hafa hluta af morgundeginum til þess að klára millidekkið og það lítur út fyrir að það takist.
Eftir það verður stefnan sett heim (þ.e. Torgið) og nýju græjurnar prufaðar.
Úrsláttaraðstaðan nýskveruð og flott.
Séð aftur að færiböndunum sem bera fisk og hausa að lóðréttum tækjum
Fiskidælan/þvottavél fyrir bolfisk
29.10.2008 13:04
Slippfréttir
Sköfunin og sporðskurður fara fram hér. Kar fyrir sporða er undir færibandinu
Böndin sem koma að pökkunarborðinu. Hægt að taka tvo flokka fram í einu.
28.10.2008 19:12
Hvilvtenni
Árið 2000 fékk Kjartan afhent nýtt og glæsilegt skip sem smíðað var í Tomrefjord í Noregi. Skipið var gert út á rækju en rekstur þess gekk illa og árið 2003 seldi hann það til Útgerðarfélagsins Tjaldur hf (sem síðar varð að Brim hf). Skipið var afhent í ársbyrjun 2004 og var gefið nafnið Guðmundur í Nesi, eftir afa Guðmundar Kristjánssonar útgerðarmanns.
Taurus (Ex. Hvilvtenni FD60)
Svona leit skútan út í færeyjum
Guðmundur í Nesi RE13 í dag (Mynd Þorgeir Baldursson)
28.10.2008 14:24
Enn verið að vinna
Það er búið að fresta brottför sem átti að vera í dag fram á föstudaginn. Ennþá eru einhverjum verkum enn ólokið, bæði í vél og á millidekkinu.
Annars skilst mér á þeim sem eru fyrir norðan að þetta gangi allt sæmilega og það sé m.a. að verða komin sæmileg mynd á millidekkið, en þó sé slatti af "smáverkum" eftir.
Þar sem við Gunni erum ekki staddir fyrir norðan þá eru því miður engar nýjar myndir í dag.
27.10.2008 10:14
Netalestin
Búið er að boða brottför á morgun kl 17:00 skilst mér.
Búið að græja lokana á frystitækin
23.10.2008 22:29
Rekkinn klár!!
Búið að raða í plast rekkann
Gísli á langabandinu
22.10.2008 20:54
Fengum kúlu á höfuðið
Annars var allt við það sama í dag, skipið fullt af mönnum sem vinna hörðum höndum að því að koma skipinu af stað sem fyrst. Þó er slatti eftir ennþá, bæði í vél og á millidekki. Gleðilegar fréttir af millidekkinu, loftlokarnir til að stjórna sjónum á móttökunni voru settir upp í dag.
Langabandið
Nýju stjórnborðin
21.10.2008 23:30
Miðnætur blogg
Héðan er annars frekar lítið að frétta. Allt gengur sinn vana gang og allir vinna að því markmið að koma skipinu til veiða sem fyrst. Við Gunni kláruðum að grunna netlestina í dag ásamt því að vera slippurunum og rafvirkjum innan handar við skipulagið á millidekkinu. Einnig var byrjað á því að festa fjarskiptakúluna á mastrið á brúnni.
Eins og vanalega setjum við inn nokkrar myndir.
Lúgurnar á nýju safnkörunum. Móttökubandið undir ruslinu.
Rekki fyrir pokarúllur frami í umbúðalest
Ok, við viðurkennum það, það er smávegis eftir ennþá!!
Óskum áfram eftir því að þið kvittið fyrir heimsóknum, í gestabók eða álitum, en endilega gerið það undir nafni.
20.10.2008 21:05
Frost á fróni
Allt hefur gengið sinn vana gang í dag og skipið lítur betur út með hverjum deginum. Bjöggi, Hjalli og Bragi bættust í hópinn aftur í dag, en um helgina vorum við bara fjórir af GINurum hér um borð, ég (Gísli), Gunni, Agnar og Keli.
Setjum að venju nokkrar myndir inn.
Bættar hillur a la Gummi Áskels, Gísli og Gunni
Aðeins búið að hreinsa til og laga í kringum úrsláttinn
Þessi mynd mun kæta pakkarana sérstaklega
Endilega að kvitta fyrir heimsóknum, annað hvort í álitum við bloggin eða í gestabókinni.
19.10.2008 20:56
Ryðgaður sunnudagur
Annars gengur allt vel. Nú er bara að spýta í lófana og koma strákunum á sjóinn sem fyrst.
18.10.2008 10:18
Slippfréttir
Það var nánast allt rifið af millidekkinu og núna er verið að pússla því nýja saman eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Helstu breytingar á millidekkinu eru þær að búið er að setja niður flokkara, ný safnkör, laga krana á frystitækjum (strákunum í pökkun til mikillar gleði), útbúa kör fyrir hausa og laga færibönd við úrsláttinn.
Flokkarinn
Hausarinn og safnkörin
Safnkörin
Micro menn
Stefnt er að því að Jollagengi fari á sjó einhverntíman eftir helgi.
Kveðja að norðan
GINarar