Blogg

30.10.2008

Prufusigling

Jæja það var farið í prufusiglingu út Eyjafjörðinn í gærkvöldi til að prufa svartolíubúnaðinn og reyndist hann í alla staði mjög vel. Lagt var af stað um 19:00 og komið aftur að bryggju um 21:00.

Karlarnir í slippnum hafa hluta af morgundeginum til þess að klára millidekkið og það lítur út fyrir að það takist.

Eftir það verður stefnan sett heim (þ.e. Torgið) og nýju græjurnar prufaðar.


Úrsláttaraðstaðan nýskveruð og flott.



Séð aftur að færiböndunum sem bera fisk og hausa að lóðréttum tækjum



Fiskidælan/þvottavél fyrir bolfisk

Skrifað 30.10.2008 kl. 18:54 af GINarar

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

29.10.2008

Slippfréttir

Enn er verið að vinna á fullu við að setja niður bönd og búnað á millidekk. Stefnt er á að fara í prufu siglingu í kvöld. Nokkrar nýjar myndir fylgja hér með.

Sköfunin og sporðskurður fara fram hér. Kar fyrir sporða er undir færibandinu


Böndin sem koma að pökkunarborðinu. Hægt að taka tvo flokka fram í einu.

Skrifað 29.10.2008 kl. 13:04 af Valdi

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.10.2008

Hvilvtenni

Ég fór smá rúnt í Reykjavík í dag og tók þá eftir að togarinn Taurus lá við Grandabryggjuna. Togarinn er í eigu Reyktal og er skipið gert út frá Eistlandi. Taurus hét áður Hvilvtenni FD 60 og var gerður út af Kjartani Jacobsen útgerðarmanni í Leirvík, Færeyjum.

Árið 2000 fékk Kjartan afhent nýtt og glæsilegt skip sem smíðað var í Tomrefjord í Noregi. Skipið var gert út á rækju en rekstur þess gekk illa og árið 2003 seldi hann það til Útgerðarfélagsins Tjaldur hf (sem síðar varð að Brim hf). Skipið var afhent í ársbyrjun 2004 og var gefið nafnið Guðmundur í Nesi, eftir afa Guðmundar Kristjánssonar útgerðarmanns.

Ég læt hér fylgja með nokkrar myndir.


Taurus (Ex. Hvilvtenni FD60)


Svona leit skútan út í færeyjum


Guðmundur í Nesi RE13 í dag (Mynd Þorgeir Baldursson)


Skrifað 28.10.2008 kl. 19:12 af Gunni

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

28.10.2008

Enn verið að vinna

Það er búið að fresta brottför sem átti að vera í dag fram á föstudaginn. Ennþá eru einhverjum verkum enn ólokið, bæði í vél og á millidekkinu.

Annars skilst mér á þeim sem eru fyrir norðan að þetta gangi allt sæmilega og það sé m.a. að verða komin sæmileg mynd á millidekkið, en þó sé slatti af "smáverkum" eftir.

Þar sem við Gunni erum ekki staddir fyrir norðan þá eru því miður engar nýjar myndir í dag.

Skrifað 28.10.2008 kl. 14:24 af Gísli

Bein slóð á færslu

10 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.10.2008

Netalestin

Við tókum netalestina í gegn í slippnum, við byrjuðum á því að stækka netahillurnar um borð hjá okkur en það var enginn annar en Gummi Áskells sem sá um að sjóða þetta saman fyrir okkur þegar því lauk þá tóku Gísli, Gunni og Valdi við verkinu og kláruðum við að rúst berja gólfið, grunna allt saman og máluðum svo hillurnar og gólfið.

Búið er að boða brottför á morgun kl 17:00 skilst mér.

Svona lítur þetta út hjá okkur .....



Búið að græja lokana á frystitækin


Skrifað 27.10.2008 kl. 10:14 af Gunni

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.10.2008

Rekkinn klár!!

Skoða nánar

22.10.2008

Fengum kúlu á höfuðið

Skoða nánar

21.10.2008

Miðnætur blogg

Skoða nánar

20.10.2008

Frost á fróni

Skoða nánar

19.10.2008

Ryðgaður sunnudagur

Skoða nánar

18.10.2008

Slippfréttir

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 75
Gestir í dag: 21
Flettingar í gær: 251
Gestir í gær: 65
Samtals flettingar: 417669
Samtals gestir: 108675
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 06:40:46