Færslur: 2008 September

24.09.2008 13:45

Allt að gerast

Það gengur víst allt mjög vel fyrir norðan í slippnum, það er unnið allan sólarhringinn skilst mér við svartolíu breytingar og er víst búið að rífa slatta af millidekkinu. Það verður gaman að komast um borð í lok nóvember og sjá þessar breytingar sem gerðar verða á vinnsluaðstöðunni. Það skildi þó ekki vera að körfu burðir heyri sögunni til?

Vorum að uppfæra síðuna smá. Settum inn nýtt myndaalbúm "Náð í skotann". Í síðasta túr fengum við mann að nafni George Booth frá Bridon í Skotlandi með okkur. Hann var eitthvað að skoða vírana hjá okkur en stoppaði stutt og var hann sóttur eftir 5 daga af björgunarsveitinn á Patreksfirði.

Jóhannes Guðmundsson svaraði nokkrum spurningum og er nýjasti meðlimurinn í "Hin Hliðin".


George frá Bridon


Vörður ll frá Patró

17.09.2008 09:10

Til hamingju !

Við óskum útgerð og áhöfn til hamingju með glæsilega veiðiferð.

Brimnes RE 27 kom inn til löndunar í gær í Reykjavík með aflaverðmæti upp á 185 milljónir króna eftir 37 daga veiðiferð, aflinn í túrnum var 1225 tonn upp úr sjó af mjög blönduðum afla. Skipstjóri var Páll Rúnarsson.



Mynd : Gunnar Finnur Gunnarsson

Brimnes RE27
Brim hf

14.09.2008 20:31

Nýjar myndir

Erum búnir að bæta við myndum úr síðasta túr.

13.09.2008 14:55

Komnir í land - farnir í slipp

Jæja, þá er áttundu veiðiferð ársins lokið. Við komum í land á Akureyri í gær og nú fer skipið í slipp þar sem það á að gera vélar þess klárar til að brenna svartolíu.

Túrinn var annars fínn þó svo að það hefði farið lítið fyrir lúðunni. Vorum með mjög blandaðan afla, alls um 440 tonn. Aflaverðmæti var um 112 milljónir.

Fengum fyrstu haustlægðina yfir okkur í túrnum og fannst okkur það nú full snemmt.

Aríel "F.Ó" Pétursson var í sínum síðasta túr með okkur en hann hefur heiðrað okkur með nærveru sinni síðustu túra. Núna ætlar hann að halda áfram með námið í Stýrimannaskólanum (eða hvað sem sá skóli heitir þetta árið). Þökkum við honum fyrir samstarfið.

Bjóðum Ingva "Lilla" Ingvason velkominn til starfa en hann hefur síðustu 19 ár verið á Hrafni Sveinbjarnar.

Munum setja inn myndir úr túrnum mjög fljótlega, en látum eina flakka hér með. Jóhannes þurfti aðeins að taka í Aríel og náðist það á mynd.

 

    Flettingar í dag: 289
    Gestir í dag: 91
    Flettingar í gær: 203
    Gestir í gær: 67
    Samtals flettingar: 612913
    Samtals gestir: 158627
    Tölur uppfærðar: 8.2.2012 21:43:37