Blogg

18.7.2008

Hvalir á torginu

Það náðust nokkrar magnaðar myndir af 2 hvölum sem voru að leika sér við síðuna hjá okkur þegar við vorum að hýfa. Myndirnar eru í albúminu undir "Hvalir".






Skrifað 18.7.2008 kl. 9:47 af Gunni

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.7.2008

Nýjar myndir

Ég var að setja inn nýjar myndir sem eru úr síðustu 2 túrum "Náð í nema" albúmið er síðan úr þar síðasta túr, strákarnir á Þór voru svo almennilegir að koma með nýjan hlera nema fyrir okkur einnig eru myndir komnar úr síðasta túr. Ég er að skrapa þessum myndum saman hjá mér og munu týnast inn fleiri myndir í vikunni.

Við óskum Brimnes mönnum til lukku með góðan túr þeir komu í land á fimmtudaginn á Akureyri með 115 milljónir eftir mánuð á veiðum.

Báturinn að skera "eyrnalokka" á trollinn


"Nú förum við að rífa þetta helvíti" Denna leist ekkert á að þyngja þetta

Skrifað 12.7.2008 kl. 15:01 af Gunni

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.7.2008

Komnir í land

Jæja, þá kemur loksins ný færsla. Erum ekki ennþá komnir með nettengingu út á sjó og því gerist lítið hér á síðunni þegar við erum úti á sjó. Komum úr fínum túr í gær, aflaverðmætið um 136 milljónir.

Fínn túr í alla staði, gott veður megnið af tímanum og sæmilegt fiskerí. Þó fengum við skítabrælu í tvo daga. Mjög "ósumarlegt" veður.  Síðan skemmdi Euro 2008 ekki fyrir.

Tókum eitthvað af myndum og munu þær koma inn á síðuna á næstu dögum.

Skrifað 9.7.2008 kl. 10:45 af Gísli

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 85
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 251
Gestir í gær: 65
Samtals flettingar: 417679
Samtals gestir: 108680
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 07:02:31