Blogg

12.5.2008

Man Utd meistarar!

Stór hluti áhafnarinnar gleðst núna þegar að ljóst er orðið (það var aldrei spurning) að Man Utd varði meistaratitilinn.  Nú er bara að stefna á tvo titla og klára þetta í Moskvu. Ekki satt Gunni?


Skrifað 12.5.2008 kl. 1:02 af Gunni

Bein slóð á færslu

12 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

7.5.2008

Platan kemur út á morgun !

Já góðir hálsar þið þurfið ekki að bíða mikið lengur því platan kemur út á morgun klukkan 14:00! Hún verður seld í betri tónlistarverslunum landsins og þess má geta að um 5000 eintök voru send norður á Húsavík og mun vera sérstök miðnæturopnun í bókabúðinni annað kvöld. Söngvari sveitarinnar, sjálfur Jón Ólafur mun, mæta á staðinn og taka nokkur lög fyrir trylltan lýðinn.


Svona lítur gripurinn út .... en meðal laga á plötunni eru slagarar eins og " Hlauptu drengur hlauptu", "Lásaðu úr helvítið þitt" og "Fletcher my man" .

Skrifað 7.5.2008 kl. 9:15 af Gunni

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

6.5.2008

Rakarastofa Kela!!

Bátsmaðurinn tók sig til á útstíminu í síðasta túr og ætlaði sér að gera áhöfnina líkari sjálfum sér og bauð upp á ókeypis rakstur upp í brú milli 2 og 4 þennan ágætis fimmtudag 4 apríl síðastliðinn. Sumir gengu svo langt að segja að raksturinn hafi átt sinn þátt í mettúr og verður fróðlegt að sjá hvað verður gert á næsta útstími....



Stjáni var fyrstur í stólinn og er ekki annað að sjá á karlinum en að hann sé sáttur með þetta



Aríel var næstur...



Ómar var síðastur í stólinn


Það eru komnar nokkrar myndir úr síðasta túr í albúmin hjá okkur, ég á eftir að setja inn fleiri myndir af rakstrinum og einnig þegar við skruppum yfir í Þór HF og náðum í nema.

p.s ég tók Athugasemda kerfið i burtu í smá tíma það voru einhverjir óprúttnir aðilar að notfæra sér það til auglýsa lélegar porno síður

Skrifað 6.5.2008 kl. 11:08 af Gunni

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

2.5.2008

Mettúr

Jæja þá erum við komnir í land eftir 30 daga veiðiferð, við gerðum okkur lítið fyrir og slógum öll met á skipinu og komum heim með 141 milljón. Ég er að vinna í því að setja inn myndir úr túrnum á síðuna.

Guðmundur í Nesi kom inn til löndunar árla í morgun með met aflaverðmæti sem nema liðlega 141 milljón. Túrinn var 30 daga túr, höfn í höfn og hefur skipið aldrei áður komið með slík verðmæti heim allt frá því það kom til landsins árið 2004. Tilefni er til að óska áhöfn Kristjáns Guðmundssonar til hamingju en heyrst hefur á gárungum að hér sé rómað heilsuátak skipverja þegar byrjað að skila sér.

brimhf.is



Skrifað 2.5.2008 kl. 15:00 af Gunni

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 85
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 251
Gestir í gær: 65
Samtals flettingar: 417679
Samtals gestir: 108680
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 07:02:31