Blogg

20.3.2008

Áhöfnin síðasta sumar

Fann þessa mynd á tölvunni hjá mér og ákvað að smella henni inn. Tekin síðasta sumar í sól og blíðu og hafa litlar breytingar orðið á mannskapnun síðan þá.

Á myndinni eru:
Efri röð frá vinstri: Ómar (vinnslustjóri), Gísli (2. stýrimaður), Alli (Háseti), Björgvin (Yfirvélstjóri), Heiðar (Yfirstýrimaður), Nonni (Netamaður), Frikki (Háseti - hættur), Keli (1. vélstjóri).
Neðri röð frá vinstri: Keli (Bátsmaður), Ægir (Háseti), Jóhannes (Vinnslustjóri), Guðni (Háseti - Hættur), Bjarni (Netamaður), Hjálmar (2. Vélstjóri), Bjössi (Kokkur), Kristján (Skipstjóri), Denni (Háseti), Gunni (Háseti)

Skrifað 20.3.2008 kl. 20:31 af GINarar

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

18.3.2008

Nýjar myndir

Erum búnir að setja inn nokkrar myndir úr síðasta túr (febrúar - annar túr ársins).

Skrifað 18.3.2008 kl. 14:16 af GINarar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

18.3.2008

GIN og tonic!

Þetta ár á greinilega ekki að vera okkar, brælur, bras og ýmis vandræði eru búið að setja sinn svip á fyrstu túra ársins hjá okkur.  Í fyrsta túrnum þá fóru strákarnir út með nýja hlera en þeir voru ekki að virka sem skyldi og eftir rúma viku var tekin sú ákvörðun að fara í land og ná í gömlu hlerana.  Gekk ágætlega restina af þeim túr en frátafir vegna brælu settu sinn svip á túrinn.

Túr númer 2 byrjaði ekki glæsilega. Við fórum út frá Reykjavík 2 febrúar, en á útstíminum kom í ljós að annar tjakkurinn á toghliðinu var farinn og ekki var hægt að gera við hann út á rúmsjó og því var farið inn á Grundarfjörð og hliðið lagað þar. Ekki var mikið mál fyrir skipstjórann að sigla inn á Grundarfjörð enda er hann Kristján grundfirðingur í húð og hár. Við stoppuðum stutt inn á Grundarfirði við komum þar inn um kvöldmatarleytið og vorum farnir fyrir miðnætti, og var stefnan  tekinn á Torgið eins og svo oft áður .

Trollið var bleytt í nokkra daga en eftir rúma viku á veiðum þá gerðist nokkuð sem engan togarajaxl dreymir um, togvírinn slitnaði og bras skollið á.  Í þessu brasi töpuðum við öðrum hleranum en náðun trollinu nánast óskemmdu upp. Það var farið inn til Reykjavíkur og lánshlerar teknir um borð.  HB Grandi lánaði okkur Viking hlera sem Engey hafði verið með. Þegar við komum aftur á Torgið hresstust menn fljótt því sæmilegast veiði skall á og það kroppaðist aðeins það sem eftir lifði túrs.

Lítið hefur frést af hinu genginu. Þó lent þeir í því að missa nýjan hlera (á ekki af okkur að ganga) í upphafi túrsins og náðu aftur í Engeyjarhlerana. Vonandi gengur vel hjá þeim núna og gengi krónunnar er okkur sjómönnun frekar hagstætt núna.

Þetta ár byrjar ekki glæsilega hjá okkur en við trúum því samt sem áður að þetta verði metár hjá okkur og erum ekkert að stressa okkur yfir þessu .

Myndavélin var lítið notuð í túrnum en ég hljóp einu sinni á vinnsludekkið og tók nokkrar myndir þær eru komnar á síðuna undir "Vinnsla Feb 08".


Skrifað 18.3.2008 kl. 13:07 af GINarar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

4.3.2008

Fyrsta túr ársins lokið

Jæja, þá erum við komnir úr fyrsta túr ársins, þ.e. fyrsta túr Stjánagengis. Það gekk sæmilega þrátt fyrir erfiða byrjun. Lentum í víraveseni í upphafi túrs en eftir að það allt komið í lag gekk ágætlega og á köflum var fín veiði. Veðrið var ágætt miðað við árstíma, þannig að það er ekki yfir neinu að kvarta. Getum vonandi sett inn nýjar myndir við fyrsta tækifæri.

Vonandi förum við að fá internettengingu um borð svo við getum verið duglegri við að blogga í sjálfum túrunum.

Skrifað 4.3.2008 kl. 14:37 af GINarar

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 105
Gestir í dag: 26
Flettingar í gær: 251
Gestir í gær: 65
Samtals flettingar: 417699
Samtals gestir: 108680
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 07:26:42