01.05.2011 09:34

Síðustu dagar túrsins

Það er farið að styttast verulega í þessum túr hjá okkur, en við verðum í landi á aðfararnótt fimmtudagsins. Hér er loksins komin blíða og veðurspáin er bara góð.

Við urðum fyrir því óláni að einn okkar varð óvinnufær og verður stýrimannsvaktin því manni færri það sem eftir lifir túrs. Eftir hádegi í gær kom þó gamall jaxl af vaktinni og stóð vaktina með okkur í 2 tíma. Þar fór blessaður kokkurinn og hefur hann litlu sem engu gleymt.

Brúðguminn horfði bergnuminn á konunglegu giftinguna í sjónvarpinu og fékk mikið af hugmyndum. Hann er búinn að hringja mikið í 118 síðustu daga og leita að hvítum dúfum, hestvögnum, þyrlum og ýmsu öðru.


Kokkurinn mættur á gamlar slóðir



Bræðurnir að pakka


Flettingar í dag: 161
Gestir í dag: 54
Flettingar í gær: 183
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 640868
Samtals gestir: 164311
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 16:25:40