Blogg
7.3.2010
Loksins komnir á Torgið
Þá erum við loksins komir á Torgið eftir frekar langt útstím. Það var nóg að gera á útstíminu, þrjú ný troll til að gera klár, nýir vírar og síðan var bara skítabræla þannig að þetta tók allt sinn tíma.
Erum á fyrsta hali og erum bara bjartsýnir á mánuðinn sem framundan er. Eins og alltaf lofum við öllu fögru hvað bloggið varðar og vonandi tekst okkur að standa við það loforð.
Biðjum annars bara að heilsa í land og verið nú dugleg að kvitta fyrir heimsóknum.
Erum á fyrsta hali og erum bara bjartsýnir á mánuðinn sem framundan er. Eins og alltaf lofum við öllu fögru hvað bloggið varðar og vonandi tekst okkur að standa við það loforð.
Biðjum annars bara að heilsa í land og verið nú dugleg að kvitta fyrir heimsóknum.
4.3.2010
Ótitlað
Eitthvað hefur bloggsíðan verið að stríða okkur og hafa færslur strokast út jafnharðan og við skráum þær, biðjumst við velvirðingar á því.Hér má sjá mýndir úr túrnum og fleira. Tekið af Guðmundi vélstjóra
http://www.flickr.com/photos/44575906@N02/
13.2.2010
þögninni lokið
Góðan daginn kæru vinir nær og fjær hjá okkur gengur allt sinn vanagang og allir eru hressir og kátir og veðrið hefur leikið við okkur siðustu daga og er bara alls ekki hægt að kvarta yfir þvi.En á siðustu dögum hefur ýmsilegt verið brasað og fóru menn frá okkur yfir i Brimnes að sækja varahluti og annan búnað og þökkum við félögum okkar á Brimnesi fyrir sendinguna.Síðan var haldið stærðar þorrablót um síðustu helgi og var allur þorramatur i heiminum á boðstólnum i þessari góðu veislu og voru menn saddir og glaðir alveg fram i miðja viku.Og siðan eru báðar vaktir búnar að halda björgunaræfingu i sjósetningu og notkun léttbats og kom það vel út og menn eru sammála um að gott sé að hafa svona æfingar reglulega.En svo viljum við minna fólk á að kommenta og leifa okkur að sjá hverjir lesa bloggið okkar.

Valur og Lexi á leið yfir i Brimnes

Hlaðborðið góða

Valdi spenntur að grípa i púngana:)

Jóel skipstjóri að sýna mönnum hvernig á að nota talstöðvar
Kv the Eagle yfir bloggari bátsmannsvaktar
Valur og Lexi á leið yfir i Brimnes
Hlaðborðið góða
Valdi spenntur að grípa i púngana:)
Jóel skipstjóri að sýna mönnum hvernig á að nota talstöðvar
Kv the Eagle yfir bloggari bátsmannsvaktar
Flettingar í dag: 198
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 396
Gestir í gær: 106
Samtals flettingar: 339459
Samtals gestir: 91838
Tölur uppfærðar: 11.3.2010 08:44:53
